Nú klukkan 13 hefst bein útsending í sjónvarpi. Við verðum í loftinu víðsvegar um landið, vestanvert: á Bolafjalli við Bolungarvík, Látrabjargi, Suðurnesjum, í Selárdal og Hellissandi og að sjálfsögðu á höfuðborgarsvæðinu.
Svona var staðan í Efstaleitinu fyrir hálftíma.
Garðskagi á Reykjanesi er einn vænlegasti staðurinn til að fylgjast með sjónarspilinu. Hvergi á suðvesturhorninu stendur almyrkvinn lengur, eða í um 1 mínútu og 45 sekúndur.
Anna Lilja Þórisdóttir fréttamaður er þar.
„Hér eru matarvagnar og skemmtidagskrá ofl. Það rignir eins og er... fólk alls staðar að úr heiminum og margir hafa komið sérstaklega til að sjá sólmyrkvann.“
Hafi fólk í huga að taka myndir af sólmyrkvanum með snjallsíma sínum er ekki mælst til þess að þysja inn og taka nærmyndir af honum án sólarsíu.
„Maður á ekki að súma inn að sólinni, ef þú gerir það þá sérðu ekki neitt,“ segir Sævar Helgi Bragason.
Vilji fólk taka nærmyndir segir hann að best sé að nota sérstakar sólarsíur fyrir snjallsíma eða bera sólmyrkvagleraugun sjálf upp að linsunni og smella þannig af.
Það þarf ekki síu sé fólk að taka víðmyndir með símanum.
Á vefnum solmyrkvi2026.is er bent á að þegar deildarmyrkvinn stendur yfir geti sólarljós skemmt myndflögur séu teknar nærmyndir af sólinni. Ekki þarf að nota sólarsíu þegar almyrkvinn stendur yfir.
Verslunarstjórum Bónuss er frjálst að loka verslunum í stundarfjórðung meðan á almyrkvanum stendur ef áhugi er fyrir því meðal starfsfólks.
Þetta segir Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónuss. Starfsfólk hafi fengið skilaboð um að allir ættu að geta kíkt út. Björgvin segist þó ekki búast við því að margir verði í verslunum Bónuss akkúrat á þeim tíma sem almyrkvinn er.
Hann segir misjafnt hvort starfsfólk hafi lýst yfir áhuga á að fylgjast með sólmyrkvanum en hann voni að sem flestir nýti tækifærið og kíki út.
Þeir sem ætla að elta glufuna í lágskýjaspánni fyrir vestan ættu að hafa umferðina í huga. Svona var umhorfs við Dynjandisheiði á tólfta tímanum.
Ellen María sendi fréttastofu myndina. Hún segir að röðin aftan við hana hafi verið enn lengri.
Veðurstofan hefur uppfært skýjahuluspá sína – og ekki batnar hún.
Í nýrri lágskýjaspá er enn gert ráð fyrir að lágský hylji nær allt landið. Það er helst á norðaustanverðu landinu (þar sem aðeins verður deildarmyrkvi) og á annesjum á Vestfjörðum sem gæti sést til sólar.
Nær allar rútur Reykjavík excursions verða nýttar í ferðir tengdar sólmyrkvanum í dag. Flestar leiðir liggja til Snæfellsness. Þetta segir starfsmaður umferðarmiðstöðvarinnar.
Hann segir þúsund farþega taka rútur fyrirtækisins frá BSÍ í dag samanborið við um hundrað á venjulegum degi á þessum árstíma.
Mikill erill er á umferðarmiðstöð BSÍ í dag.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn verður opinn til klukkan sjö í kvöld og sólmyrkvagleraugu eru innifalin í aðgangseyri.
Leiktækjunum verður lokað klukkan fimm til þess að þau trufla ekki meðan á sjónarspilinu stendur.
„Sumir hafa áhuga á að vera innan um dýr þegar sólmyrkvinn verður,“ segir Sigrún Thorlasius, deildarstjóri þjónustu og reksturs Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.
„Fólk getur fylgst með hvernig dýrin taka þessu.“
Hún segist ekki vita hvernig dýrin muni bregðast við. „Náttúran stoppar, hefur maður heyrt.“
Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir að starfsfólki bæjarins verði frjálst að fara út að berja sólmyrkvann augum síðdegis. Almyrkvinn verður eftir að hefðbundnum dagvinnutíma lýkur svo það verða ekki margir við vinnu.
Gylfi gerir ráð fyrir því að atvinnurekendur í bænum verði að sama skapi sveigjanlegir og leyfi starfsfólki sínu að fara út að fylgjast með á meðan almyrkvanum stendur. „Ég held að fólk geri ráð fyrir að það verði engir viðskiptavinir.“
Mikill fjöldi er í Ísafjarðarbæ þessa stundina. „Það er maður við mann. Það eru mjög margir gestir,“ segir Gylfi. Hann segir þetta skýrast af tvennu – sólmyrkvagestum og farþegum skemmtiferðaskipa sem eru í höfn. Þau halda svo út á haf síðar í dag þegar nær dregur myrkvanum.
Gréta Sigríður Einarsdóttir fréttamaður er á leið að Látrabjargi, þar sem sólmyrkvinn varir lengst á Íslandi, 2 mínútur og 13 sekúndur.
Vegurinn að Látrabjargi var lokaður í nótt, en var opnaður snemma í morgun. Aðeins verður 125 bílum hleypt að bjarginu. Nú skömmu fyrir klukkan 10:30 voru ríflega 85 bílar farnir yfir. Þá er einnig í boði að ganga frá Breiðavík. Gönguferðin er um 13 km löng og tekur 2–3 tíma.
Umferð er einnig stýrt inn að Rauðasandi en þangað komast töluvert fleiri. Enn er pláss fyrir um 30–40 bíla þangað.
Lögregla segir að umferðarstýring hafi gegið vel. Þá er bent á að nóg pláss sé í Breiðavík.
Hér fyrir neðan er farið yfir umferðarstýringu vegna sólmyrkvans.
Jakob Frímann Magnússon ætlar ekki að nota veðurbreytinn rómaða til að létta skýjahulunni sem liggur yfir landið í dag.
Almættið fái að stýra veðrinu í dag þar sem hann sé í allt öðrum verkefnum. „Ég er búinn að leggja mína hönd á stór verkefni ársins. Ég er kominn í annars konar stellingar,“ segir hann.
Jakob virðist þó vita meira en hann gefur upp. „Ég er bjartsýnn á að það birti til áður en myrkvar, allavega í kringum svæðið sem leiðir okkur að miðju alheimsins,“ segir hann sposkur og vísar þar líklega í bókina Ferðin að miðju jarðar eftir Jules Verne þar sem söguhetjur ferðast að miðju jarðar í gegnum Snæfellsjökul.
Augnheilsan í fyrirúmi
Jakob Frímann segist ekki trúa öðru en að sólmyrkvinn verði ánægjulegur bæði fyrir Íslendinga og ferðamenn sem hafa komið til landsins til að berja hann augum.
Sjálfur segist hann hafa augnheilsu sína og fjölskyldu sinnar í fyrirrúmi og er búinn að kaupa sólmyrkvagleraugu.
Jakob Frímann á að hafa beitt veðurbreytinum á tónlistarhátíðinni Bergmáli á Þingvöllum í sumar og á hátíðinni Vori í Vaglaskógi í fyrra með góðum árangri. Þá var veðurbreytinum einnig beitt á tónlistarhátíðinni Secret Solstice fyrir um áratugi.
Breskur uppfinningamaður að nafni David Blatch er sagður eiga heiðurinn af veðurbreytinum og hafa flutt hann til Íslands.
Það má gera ráð fyrir að umferðarþungi liggi suður Reykjanesbrautina þegar líður á daginn. Enn sem komið er er umferðin þó ekki mikið meiri en gerist á venjulegum degi, samkvæmt tölum frá Vegagerðinni.
Það er kannski tilefni til að benda lesendum á að Vegagerðin heldur úti umfangsmiklu neti vefmyndavéla hringinn í kringum landið, sem má fylgjast með í beinni hér.
Undirbúningur fyrir almyrkvann hófst í Suðurnesjabæ fyrir ári síðan og fór á fullt eftir páska, segir Alexandra Jóhannesdóttir, nýr bæjarstjóri. Hún segir erfitt að spá fyrir um hversu margir verði í sveitarfélaginu í dag til að fylgjast með almyrkvanum, þetta gætu verið nokkur hundruð upp í nokkur þúsund manns.
„Það er öll gisting löngu uppseld, þar með talið á tjaldsvæðinu. Við brugðumst við því með því að stækka tjaldsvæðið í Sandgerði til að mæta fjöldanum. Það eru gistiheimili og hótel og íbúagistingar sem seldust upp fyrir mörgum mánuðum. Ég myndi segja að bærinn sé uppseldur. Ég er ekki farin að merkja að það sé aukning í umferðarþunga enn sem komið er en það hlýtur að fara að detta inn,“ sagði Alexandra Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun.
Ertu í góðum hópi fólks sem ætlar að fylgjast með í dag? Siturðu í umferðarteppu? Er allt með kyrrum kjörum?
Sendu okkur myndir eða myndskeið af sólmyrkvanum og sýndu okkur þitt sjónarhorn með því að smella hér eða með því að skanna QR-kóðann.
Samkvæmt veðurspám verður skýjað á langstærstum hluta landsins þegar sólmyrkvinn gengur yfir. Mestar líkur eru á því að myrkrinn sjáist á norðanverðum Vestfjörðum.
Útlit er fyrir að metfjöldi gisti á hótelinu og á tjaldsvæðinu í Breiðavík í nótt.
Maggý Hjördís Kieransdóttir, dóttir eigenda Hótels Breiðavík, segist spenntari fyrir mannfjöldanum en sólmyrkvanum sjálfum. „Nú er léttskýjað í Breiðavík og sést víða í bláan himin, segir Maggý. „En það er þurrt og gott veður og hlýtt.“
Kristín Ragna Höskuldsdóttir sendi okkur þessa mynd úr Keldudal í Dýrafirði, þar sem sólin skín.
Ásta Sigurborg Guðjónsdóttir upplifði almyrkva á sólu í Vestmannaeyjum árið 1954. Hún var þá 25 ára og myrkvinn kom henni að óvörum. Hún fylltist lotningu en fannst hann á sama tíma ógnvekjandi.
Hún býr nú á höfuðborgarsvæðinu og ætlar að fylgjast með sólmyrkvanum í dag.
„Uppi á þaki hjá vinkonu minni. Það eru svalir hérna uppi á þaki. Við ætlum ekki að fara neitt,“ sagði Ásta við fréttastofu í gær. Viðtal við hana má sjá í færslunni hér að ofan.
Það er víðar en á Vestfjörðum þar sem fólk getur fylgst með almyrkvanum. Hann varir lengur eftir því sem vestar dregur.
Á Vestfjörðum, Snæfellsnesi, Vesturlandi og Reykjanesskaga gengur skugginn að fullu fyrir sólina og þá verður almyrkvi.
Þar verður gripið til umferðarstýringa og einstefna verður um marga umferðarþunga vegi í vegakerfinu. Yfirlit með skýringamyndum má finna í meðfylgjandi færslu.
Lögreglan á Vestfjörðum lokaði leiðinni frá Breiðavík að Bjargtöngum í nótt af öryggisástæðum. Talsverður fjöldi fólks er þegar kominn í Breiðavík sem er næsti gististaður við Látrabjarg. Almyrkvinn varir lengst á landinu á bjarginu í dag, eða í 2 mínútur og 13 sekúndur.
Frá botni Patreksfjarðar og út á Látrabjarg verður einstefna frá klukkan 8 til klukkan 18 í dag og sömuleiðis út á Rauðasand. Stefnt er að því að snúa einstefnunni við þegar almyrkvinn hefur gengið yfir.
Það er óhætt að segja að veðurskilyrði til að horfa á sólmyrkvann í dag mættu vera betri. Samkvæmt spám verður skýjað á nær öllu landinu þegar myrkvinn verður sem mestur.
Skýjahuluspá Veðurstofunnar má nálgast með því að smella hér.
Góðan dag og velkomin í þessa fréttavakt um almyrkva á sólu 12. ágúst 2026.
Við hér á fréttastofu RÚV ætlum að segja frá öllu því sem snýr að almyrkvanum í dag í öllum okkar miðlum.
Á Vestfjörðum, Snæfellsnesi, Vesturlandi og Reykjanesskaga gengur tunglið að fullu fyrir sólina og þá verður almyrkvi. Hversu lengi almyrkvinn varir veltur á staðsetningu. Það getur verið allt frá nokkrum sekúndum upp í rúmar tvær mínútur vestast á landinu.
Bein sjónvarpsútsending hefst á RÚV klukkan 13 og varir til 20. Útsendingin verður meðal annars frá Bolafjalli, Látrabjargi, Selárdal og Hellissandi, auk höfuðborgarsvæðisins. Fylgst verður með undirbúningi, umferðinni og ferðamönnum svo eitthvað sé nefnt. Þar að auki verður rætt við sérfræðinga og fólk hér og þar á landinu sem ætlar sér að fylgjast með þessu sjónarspili.
Lesendur geta sent okkur myndefni hvaðan sem er af landinu í gegnum þessa vefslóð.