Það eru ekki allir sem gefa stjórnmálaflokkum atkvæði í sveitarstjórnarkosningum. Einhverjir kjósendur skila auðum seðlum í kjörkassa. Þá er fjöldinn allur af kjörseðlum á ári hverju ógildur vegna þess að þeir eru ranglega útfylltur.
Stundum er það viljandi líkt, og í tilfelli skrautlegs kjörseðils sem skilað var inn í Reykjavík. Kjósandi hafði fyrir því að teikna mynd af þjófi með peningapoka og líma hana inn í seðilinn með textanum „STJÓRNMÁL!“. Þá var búið að strika yfir alla lista á seðlinum.
En hvernig er metið kjörseðil eins og þennan?
„Þetta fer í úrskurð. Það þarf að velta því fyrir sér hvort þetta sé ógildur seðill eða ekki. Kannski að Ólafur Þ. Harðarson geti farið eitthvað fyrir þetta en ég hugsa að þetta verði nú metið ógilt,“ segir Tómas, starfsmaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík.