Skólabjöllu grunnskóla Grindavíkurbæjar verður hringt í næstu viku, í fyrsta sinn í tæplega þrjú ár. Skólastjóri leik- og grunnskóla í bænum segir undirbúning hafa gengið vel.
Líf er óðum að færast í Grindavíkurbæ í skugga náttúruvár og eldsumbrota. Skólastarf hófst í leikskólanum Laut í síðustu viku – og börnin nutu útiverunnar í blíðskaparveðri í morgun.
Á þriðjudag mæta svo 24 nemendur á skólasetningu grunnskólans og segir Guðlaug Erlendsdóttir, skólastjóri, allt til reiðu.
„Það hefur gengið bara mjög vel að undirbúa. Það er svolítið krefjandi því þetta verður öðruvísi, ekki þetta hefðbundna sem maður kannast við.“
„Nýi skólinn og gamli skólinn“
Sex kennarar sjá um kennslu og nemendahópnum verður skipt í þrennt: yngsta stig, miðstig og efsta stig.
Kennararnir Gréta Dögg Hjálmarsdóttir og Ólöf Daðey Pétursdóttir segja góða samheldni í kennarahópnum.
„Bara allir mjög jákvæðir og bjartsýnir og lausnamiðaðir,“ segir Gréta.
„Við erum spenntar að takast á við nýtt skólastarf. Við vorum báðar kennarar hérna áður og kunnum þetta og höfum gert þetta áður, en þetta er kannski, við köllum þetta nýja skólann og svo erum við með gamla skólann,“ segir Ólöf og heldur áfram:
„Okkur langar að gera þetta svolítið spennandi, fá börn, margir kennarar. Þá gefur þetta okkur rými til að nálgast hlutina aðeins öðruvísi og nýta náttúruna og allt sem hefur gerst hérna í kennslunni, sem okkur finnst rosalega spennandi.“
„Við förum bara úr bænum og aftur til baka“
Þau Hjálmar Logi, Mía Daðey og Pétur Marinó eru spennt fyrir nýju skólaári og vita alveg hvað á að gera ef til rýmingar kemur.
„Við förum bara úr bænum og svo förum við aftur til baka strax eiginlega eftir einn dag. Þetta er svo fljótt,“ segir Hilmar Logi, 11 ára.
„Ég er eiginlega bara, mér líður alveg svona, ég er eiginlega ekkert hrædd. Það er búið að byggja varnargarðinn fyrir utan alla Grindavík, þannig það kemur eiginlega ekkert eldgos,“ segir Mía Daðey Magnúsdóttir, 9 ára.
En hvað finnst ykkur um að vera komin aftur í skóla í Grindavík?
„Bara æðislegt. Ég er bara svo spenntur. Ég bara ohhh... ég bara. Ég hef ekki einu sinni orð til að segja,“ segir Hjálmar Logi.
„Það er bara geggjað,“ segir Mía Daðey.
„Mér finnst það ofsalega skemmtilegt og ég er bara tilbúinn fyrir skólaárið,“ bætir Pétur Marinó, 8 ára, við.
Nýtt áhættumat væntanlegt og rýmingar- og öryggisáætlanir tilbúnar
Unnið er að nýju áhættumati fyrir Grindavíkurbæ sem Pétur Markan, bæjarstjóri, segir að verði tilbúið í haust. Öryggis- og rýmingaráætlanir fyrir leik- og grunnskóla séu tilbúnar.
„Við erum á góðum stað, öruggum stað til að hefja skólastarf, með allt á hreinu.“
Og Guðlaug skólastjóri segist líta björtum augum til framtíðar.
„Ég sé fyrir mér að fjölgunin verði hröð. Við náum kannski ekki fyrri hæðum fljótlega, við vorum með 550 nemendur fyrir rýmingu og 100 starfsmenn. En ég sé fyrir mér að það fjölgi ört í hópnum.“