Báðir skjálftarnir voru staðsettir í norðanverðri öskju Bárðarbungu á um tveggja til fjögurra kílómetra dýpi. Um tuttugu eftirskjálftar höfðu mælst skömmu fyrir klukkan níu. Greint er frá þessu í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Fyrri skjálftinn mældist klukkan 20:10 í kvöld og sá seinni klukkan 20:14.
Síðast fannst skjálfti yfir fimm að stærð á svæðinu þann 31. janúar síðastliðinn og mældist hann 5,4.
Bárðarbunga er megineldstöð sem liggur undir Vatnajökli og hafa minnst 26 eldgos orðið þar á síðustu ellefu öldum, samkvæmt hinni íslensku eldfjallavefsjá. Síðast var þar sprungugos í Holuhrauni norðan Vatnajökuls sem stóð yfir frá ágúst 2014 til febrúar 2015.