Færsla í Facebook hópnum Íslensk Vélarrúm hefur vakið talsverða athygli eftir að mynd var birt af tröppum um borð í skipinu Dala Rafni þar sem þrepin hafa verið máluð í litum íslenska fánans.
Með myndinni skrifar Anton Traustason, stjórnandi hópsins: „Hatursfullir menn hér á Dala Rafni,“ ásamt hláturstjáknum.
Í athugasemdum er því haldið fram að málunin sé tilvísun í nýlegt mál við Grafarvogskirkju þar sem íslenski fáninn var málaður yfir svokallaðan inngildandi framfarafána sem hafði áður verið á tröppunum.
Það mál vakti mikla umræðu fyrr í vikunni og skiptust skoðanir verulega um hvort um væri að ræða tjáningu eða skemmdarverk.
Sama má segja um viðbrögðin við myndinni úr Dala Rafni. Jóhann Pétur Pétursson gagnrýndi verkið og sagði þjóðfánann ekki eiga að vera notaðan til að hnýta í minnihlutahópa.
„Þjóðfáninn okkar hefur aldrei verið nýttur sem vopn gagnvart minnihlutahópum og ætti ekki að vera nýttur sem slíkur,“ skrifaði hann.
Örn Johnson svaraði og spurði hverjum væri verið að hnýta í. Jóhann svaraði því til að um væri að ræða augljósa vísun í Grafarvogskirkjumálið þar sem íslenski fáninn hefði verið notaður til að mála yfir fána LGBT fólks.
Örn var ósammála þeirri túlkun og sagði meðal annars að LGBT fólk ætti ekki meiri heimtingu á að fáni þess væri málaður á eigur almennings en aðrir hópar.
Athugasemdirnar voru þó langt frá því að vera einróma. Sumir hrósuðu framtakinu og kölluðu það „flott“ og „cool“, á meðan aðrir sögðu skipverjana „kjána“ eða bentu á að verið væri að traðka á fánalitunum þegar gengið væri upp og niður tröppurnar.
Einn benti einnig á að lykilatriðið væri hvort eigandi skipsins hefði samþykkt málninguna, en annar velti því fyrir sér hvort máluð þrep gætu orðið hál og hvort þau uppfylltu öryggiskröfur.
