Skiptalok urðu nýlega í félaginu Koop Reykjavík ehf. en félagið var úrskurðað gjaldþrota í janúar á þessu ári.
Starfsemi Koop Reykjavík var fasteignamiðlun og var fyrirtækið að fullu í eigu Gyðu Dan Johansen, fyrrverandi eiginkonu Ara Edwald, oddvita Miðflokksins í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Ari og Gyða unnu um tíma saman á fjölmiðlafyrirtækinu 365 miðlum, þar sem hann var forstjóri og hún rekstrarfulltrúi. Þau eignuðust dóttur saman árið 2012, giftust árið 2015 og skildu árið 2020.
Sjá einnig: Lúxuslíf Íslendinga:Ari og Gyða – Úr fjölmiðlum í mjólk
Lýstar kröfur í bú Koop Reykjavík voru samtals 26.625.061 kr. Voru allar lýstar kröfur í þrotabúið afturkallaðar.
Ari Edwald hafði samband við DV og gerði athugasemdir við fyrri útgáfu fréttarinnar. Bendir hann á að sú staðreynd að allar lýstar kröfur hafi verið afturkallaðar sýni að eiginlegt gjaldþrot hafi ekki orðið og Gyða hafi fengið félagið aftur í hendur.
Í tilkynningunni sem birt í Lögbirtingablaðinu segir þó að skiptalok hafi farið fram og í fyrirtækjaskrá RSK er félagið skráð gjaldþrota.
Fréttinni hefur verið breytt
