Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
Tími gervigreindar runninn upp í bandarískum stjórnmálum. Forsetinn birtir myndir af sér sem hetjum og andstæðingum sem aulum, sem tala beint inn í orðræðu hans og styðja við hugmyndir sem stuðningsmenn hans hafa þegar samþykkt. Sumar myndirnar eru svo raunverulegar að þær setjast djúpt í undirmeðvitundina.
Sem konungur, páfi og Jesú, eða sem handhafi friðarverðlauna Nóbels. Með aðstoð gervigreindar hefur Donald Trump brugðið sér í öll þessi hlutverk og fleiri, á myndum sem hann birtir af sjálfum sér á samfélagsmiðlum.
Nýtt tímabil er runnið upp þar sem forseti Bandaríkjanna nýtir gervigreind og nútímatækni í áróðursskyni. Á samfélagsmiðlum hans og Hvíta hússins birtist forsetinn ekki aðeins sem hetja, samhliða gervigreindarmyndum og myndböndum sem eru til þess fallin að niðurlægja andstæðingana, heldur er efni dreift sem inniheldur villandi upplýsingar eða uppspuna frá rótum.
Stöðug og milliliðalaus skilaboð
Frá því að Donald Trump hóf kosningabaráttuna fyrir endurkjöri sem forseti hefur hann nýtt gervigreind í pólitískum áróðri. „Hann er að nota mjög þekktar aðferðir í áróðursfræðum og ímyndarsköpun,“ segir Valgeir Magnússon, sérfræðingur í auglýsinga- og markaðsmálum. „Munurinn er að tæknin gerir honum kleift að gera þetta stöðugt, án milliliða og ná beint til fólks.“
Mörgum var brugðið í febrúar 2025 …