Maður lést eftir hákarlsárás í norðurhluta Queensland-fylkis í dag en þetta er þriðja banvæna hákarlsárásin í Ástralíu á þessu ári.
Maðurinn, sem var 39 ára gamall, lést af völdum alvarlegs höfuðáverka eftir að ráðist var á hann þar sem hann var við skutulveiðar við Kennedy Shoal, sem er rif úti fyrir ströndinni, að sögn lögreglunnar í Queensland.
„Hann var sóttur upp úr sjónum af öðrum manni sem var með honum í sjónum þegar árásin átti sér stað,“ sagði Elaine Burns, lögreglufulltrúi í Queensland, á blaðamannafundi.
„Það er skelfilegt að horfa upp á slíkt gerast,“ bætti hún við.
Þremur veitt áfallahjálp
Lögreglan veitti þremur mönnum áfallahjálp en þeir höfðu kallað á strandgæsluna eftir hjálp úr einkabát rétt fyrir hádegi að staðartíma (klukkan tvö í nótt að íslenskum tíma) og sigldu síðan í rúma klukkustund með slasaðan vin sinn í land.
Maðurinn, sem var lífshættulega slasaður, kom að bátabryggju við Hull River Heads klukkan 13, þar sem neyðarþjónusta beið hans.
Maðurinn lést við bátabryggjuna, að sögn sjúkraflutningaþjónustunnar í Queensland.
„Þetta er hörmulegur atburður fyrir alla sem að koma,“ sagði Burns og hvatti fólk til að „halda áfram að njóta fallegu strandlengjunnar okkar og vera meðvitað um umhverfi sitt“.
Staðurinn þar sem árásin átti sér stað er um 160 kílómetra suður af hinni vinsælu ferðamannaborg Cairns, þar sem maðurinn, sem lögreglan nafngreindi ekki, hafði búið.