Sjálfstæðismenn með meirihluta í Kópavogi

Sjálfstæðismenn með meirihluta í Kópavogi

Sjálfstæðismenn með meirihluta í Kópavogi

Samkvæmt nýjustu tölum úr Mýrdalshreppi er listi Samfélagsins með forskot á A fyrir alla. Samfélagið er með 58,13% og A fyrir alla með 41,87% þegar búið er að telja 62,61% atkvæða.

Meirihlutinn er fallinn í Reykjanesbæ ef marka fá fyrstu tölur. Sjálfstæðisflokkur er með 38 prósent atkvæða þegar tæpur þriðjungur atkvæða hefur verið talinn.

Vilhjálmur Árnason oddviti flokksins segist hafa fundið mikinn meðbyr og kveðst hlakka til fara að vinna fyrir bæjarfélagið. Vilhjálmur segir ekki enn liggja fyrir hvort hann hætti á þingi nái Sjálfstæðisflokkurinn meirihluta í bænum.

„Það á bara allt eftir að koma í ljós.Nú bara klárum við þetta kvöld og ræðum svo framtíðina hvað það varðar,“ segir Vilhjálmur.

Fyrstu tölur benda til að Samfylkingin missi mann en oddvitinn Guðný Birna Guðmundsdóttir segir nóttina unga og að enn eigi eftir að telja talsvert. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir oddviti Framsóknarflokksins tekur í sama streng.

Gunnlaugur Kárason oddviti Miðflokks fagnar því að flokkurinn sé að fá mann í bæjarstjórn. Arnar Páll Guðmundsson oddviti Viðreisnar, sem ekki næði inn manni miðað við fyrstu tölur, segir ekki alla nótt úti enn.

Búið er að telja rúmlega 60% atkvæða á Seltjarnarnesi. Hér eru nýjustu tölur.

Sjálfstæðisflokkurinn er efstur með 58,86%. Þetta stefnir í bestu niðurstöðu flokksins í sveitarfélaginu frá 2006, þegar hann fékk 67,2%.

Miðflokkurinn bauð fram á Seltjarnarnesi í fyrsta sinn líkt og sameiginlegur listi Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra.

Miðflokkurinn er með 14,54% eins og staðan er og Samfylkingin, Viðreisn og óháðir eru með 34,6%.

Búið er að telja rúmlega fjórðung atkvæða á Akranesi. Þar er Sjálfstæðisflokkurinn stærstur. Atkvæðahlutfall hans lækkar um eitt prósent frá síðustu kosningum en kjörnum fulltrúum hans fjölgar samt úr þremur í fjóra vegna dreifingar atkvæða.

Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn eru með 23 prósent hvor flokkur og tvo bæjarfulltrúa. Báðir flokkar missa einn bæjarfulltrúa.

Viðreisn bauð fram í fyrsta skipti og fær einn bæjarfulltrúa samkvæmt fyrstu tölum. Miðflokkurinn bauð fram 2018 en náði ekki inn og var ekki í framboði síðast. Hann nær ekki inn fulltrúa eins og staðan er núna.

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig miklu fylgi milli kosninga og er með 38 prósent atkvæða þegar búið er að telja tæplega þriðjung greiddra atkvæða. Hann fjölgar bæjarfulltrúum sínum úr þremur í fimm og fær samkvæmt þessu sína bestu kosningu í 20 ár.

Miðflokkurinn sem fékk 1,8 prósent fyrir fjórum árum fær nú 11,1 prósent og einn bæjarfulltrúa.

Miðað við þetta vænkast mjög vonir Vilhjálms Árnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og oddvita hans í Reykjanesbæ, um að verða bæjarstjóri.

Framsókn bætir við sig fylgi og Viðreisn sem býður fram í fyrsta skipti fær fimm prósent. Samfylkingin dalar milli kosninga og missir einn bæjarfulltrúa.

Talsverðar breytingar urðu á stjórnmálalandslaginu milli kosninga. Bein leið og Píratar og óháðir bjóða ekki fram og Umbót rann saman við Sjálfstæðisflokkinn.

Fyrstu tölur kvöldsins bárust úr Svalbarðsstrandarhreppi um klukkan átta þar sem kjörsókn var rúm 78 prósent. Bjarni Þór Guðmundsson efsti maður á lista Ströndungs sagði í samtali við kosningaútvarp Rásar 2 menn þegar tekna að ræða saman og fara yfir framtíðina í sameiginlegu kosningapartýi.

Hann segist vera að ljúka öðrum verkefnum áður en hann mætir í teitið en hefur frétt að stemmningin sé góð. Allir vilji sveitarfélaginu vel og því auðvelt að ná samkomulagi.

Stóru málin eru meðal annars fráveitumál, stækkun skóla og félagslíf eldri borgara. Galdurinn að baki skjóti talningu segir Bjarni Þór einfaldan, atkvæði séu fá og smurt gengur að telja. Alls greiddu 295 af 377 kjósendum atkvæði.

Í Árneshreppi var listakosning í fyrsta sinn í mörg ár. Hér eru lokatölur þaðan.

Framtíð Árneshrepps er efst með 58,49% atkvæða og Sólstöður eru með 41,51%.

Samfylkingin og óháðir eru með flest atkvæði þegar búið er að kjósa þriðjung atkvæða í Suðurnesjabæ, 33,6 prósent og þrjá bæjarfulltrúa. D-listi og óháðir eru með jafn marga bæjarfulltrúa út á 26,8 prósent. D-listi og óháðir voru stærstir á síðasta kjörtímabili.

Framsókn og óháðir hafa fengið 22,9 prósent atkvæða og tvo bæjarfulltrúa. Miðflokkurinn er með 16,7 prósent og einn bæjarfulltrúa.

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig miklu fylgi í Kópavogi og fær 45 prósent atkvæða og meirihluta bæjarfulltrúa, samkvæmt fyrstu tölum. Ef þetta gengur eftir er Sjálfstæðisflokkurinn að fá sína bestu kosningu í Kópavogi síðan 2006.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk 33,3 prósent atkvæða fyrir fjórum árum. Það dugði honum til fjögurra fulltrúa í bæjarstjórn. Nú skila 45 prósent honum 6 fulltrúum. Samfylkingin bætir líka við sig miklu fylgi og fer úr 8,2 prósentum í 19,3 prósent.

Viðreisn heldur sínum manni og Miðflokkurinn fær inn fulltrúa eftir að hafa ekki náð kjöri fyrir fjórum árum. Framsókn tapar einu sæti.

Í Fljótsdalshreppi var óbundin kosning. Halla Auðunardóttir fékk mest fylgi og þar á eftir var Guðni Jónsson.

  • 58 atkvæði – Halla Auðunardóttir
  • 47 atkvæði – Guðni Jónsson
  • 30 atkvæði – Þórhallur Jóhannsson
  • 28 atkvæði – Lárus Heiðarsson
  • 27 atkvæði – Helga Eyjólfsdóttir

Helgi Gíslason varð sveitarstjóri Fljótsdalshrepps 2020 en sóttist ekki eftir því að halda áfram.

Fleiri breytingar verða í sveitarfélaginu, líkt og fram kemur á vef Austurfréttar. Þar er sagt frá því að Jóhann F. Þórhallsson og Anna Jóna Árnmarsdóttir hafi beðist undan endurkjöri.

Jóhann F. Þórhallsson tók fyrst sæti árið 1998 og Anna Jóna Árnmarsdóttir var kjörin sem varamaður árið 1998 og hefur setið óslitið í sveitarstjórn síðan. Þar með er hún sá fulltrúi á Austurlandi sem hefur starfað lengst.

Úrslitin liggja fyrir í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þar var L-listi Samvinnulistans með meirihluta á síðasta kjörtímabili og það verður engin breyting á því að þessu sinni.

L-listinn fékk 57,3 prósent atkvæða og þrjá fulltrúa. E-listi Uppbyggingar fékk 42,7 prósent atkvæða og tvo fulltrúa.

Lokatölur eru komnar úr Reykhólahrepp og Raddir okkar allra fengu mest fylgi með 71,5%.

Samfylkingin og óháðir fengu 28,45%

Kjörfundi er lokið um land allt og búið er að loka kjörstöðum. Úrslitin eru því ráðin – að því leyti að kjósendur hafa talað en nú er bara eftir að telja atkvæðin og komast að vilja þeirra.

Við segjum allar nýjustu fréttir hér á fréttavaktinni. Svo má ekki gleyma kosningavökum í sjónvarpi og á Rás 2. Horfa má á kosningavöku sjónvarps efst í þessari fréttavakt.

Búið er að telja í Ásahreppi. Þar voru engir framboðslistar og því allir í framboði.

Ísleifur Jónasson og Helga Björg Helgadóttir fengu 86 atkvæði hvort, Kristín Hreinsdóttir 72, Gréta Vilborg Guðmundsdóttir 47 og Emil Þórðarson fékk 46 atkvæði.

Mikil endurnýjun er í Strandabyggð þar sem tveir nýir listar voru í framboði, B-listi Framsóknar og óháðra og G-listi Vegvísis. Mikið gekk á á kjörtímabilinu og fimm sveitarstjórnarfulltrúar höfðu beðist lausnar um mitt kjörtímabil.

Vegvísir náði meirihluta í sveitarstjórn, fékk þrjá af fimm fulltrúum út á 49,7 prósent atkvæða.

Framsóknarmenn og óháðir með 26,0 prósent og Strandabandalagið með 24,3 prósent fengu sinn hvorn fulltrúann kosinn.

Miklar breytingar urðu í sveitarstjórn Skaftárhrepps þar sem Sjálfstæðismenn unnu meirihluta, fengu 62,2 prósent atkvæða og þrjá af fimm kjörnum fulltrúum. Ö-listi Öflugs samfélags fór úr fjórum fulltrúum í tvo og fékk 37,8 prósent atkvæða.

Fyrstu úrslit dagsins bárust úr Svalbarðsstrandarhreppi þar sem Ö-listi Ströndungs átti mestu fylgi að fagna. Hann fékk 42,0 prósent atkvæða og tvo fulltrúa kjörna. Strönd til framtíðar fékk einnig tvo fulltrúa, með 34,7 prósent.

Samstaða rak lestina með 23,3 prósent og einn kjörinn fulltrúa. Listi Samstöðu hafði vissa sérstöðu því þar voru aðeins konur á lista.

Sums staðar verða afgerandi úrslit í nótt og sums staðar verður mjótt á munum. Þetta þekkjum við frá fyrri kosninganóttum – og morgnum ef út í það er farið.

Hvert atkvæði getur skipt máli. Síðasti Þjóðarpúls Gallups fyrir kosningar í Reykjavík gaf til dæmis til kynna að mjótt væri á munum milli þriðja manns Miðflokksins og sjötta frambjóðanda á lista Samfylkingarinnar.

Sagan geymir svo mörg dæmi um spennandi kosningar.

Fyrir fjórum árum þurfti hlutkesti til að ráða úrslitum í tveimur sveitarfélögum þar sem allir voru í framboði.

Anna Jóna Árnmarsdóttir og Urður Gunnarsdóttir fengu jafn mörg atkvæði í Fljótsdalshreppi og enduðu saman í fimmta sæti. Aðeins önnur gat þó tekið sæti í fimm manna sveitarstjórn. Kastað var upp á milli þeirra og varð Anna Jóna hlutskarpari. Hún var þá komin í háttinn og frétti ekki af úrslitunum fyrr en hún vaknaði næsta dag.

Jón Ingi Jónsson og Marinó Bjarnason fengu báðir 43 atkvæði í Tálknafjarðarhreppi og varð að kasta upp á milli þeirra hvor þeirra fengi fimmta og síðasta sætið í sveitarstjórn. Jón Ingi stóð uppi sem sigurvegari.

Sjaldnast þarf tvö hlutkesti til að ráða úrslitum en sú var raunin í Langanesbyggð 2014. Bæði þurfti að kasta upp á milli Halldóru Jóh. Friðbergsdóttur, af U-lista, og Hilmu Steinarsdóttur, hjá Nýju afli, um hvort yrði í þriðja sæti í sjö manna sveitarstjórn. Afdrifaríkara var þó að hlutkesti þurfti til að skera úr um hver yrði síðasti fulltrúinn inn í hreppsstjórn. Reynir Atli Jónsson, hjá Nýju afli, reyndist hlutskarpari en Karl Ásberg Steinsson, U-lista.

2002 þurfti að kasta hlutkesti til að ráða úrslitum um hvort fjórði maður af lista Framsóknar eða annar maður Borgarbyggðarlistans næði inn. Borgarbyggðarlistinn vann hlutkestið en Framsókn kærði kosningarnar og þær voru ógiltar. Í endurtekinni kosningu náði Framsókn sínum fjórða manni á kostnað Sjálfstæðisflokksins.

Góða kvöldið og velkomin á nýja fréttavakt. Hér ætlum við að fylgjast með talningu atkvæða, segja frá úrslitum og greina það helsta sem gerist.

Kjörstöðum verður lokað klukkan tíu í kvöld. Óljóst er hvenær talningu lýkur en við verðum á vaktinni þangað til.

Að neðan má sjá fréttavaktina frá því í dag.

#kópavogi #meirihluta #með #sjálfstæðismenn


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-16-sjalfstaedismenn-med-meirihluta-i-kopavogi-475368

📰 Aðrar fréttir

Um 8% vilja búa í stórum fjölbýlishúsum – en það er 83% af því sem er byggt
📅 02.10.2026 👁️ 0
Um 8% vilja búa í stórum fjölbýlishúsum – en það er 83% af því sem er byggt
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) lét í vor gera könnun um skipulags- og búsetuóskir Íslendinga. Hún var lögð fyrir rúmlega fjögur þúsu...
Widdecombe suspect charged with planning acts of terror against Farage
📅 02.10.2026 👁️ 0
Widdecombe suspect charged with planning acts of terror against Farage
Counter terror police say the further charge comes after a "hugely intensive and complex investigation".
Hornfirðingar rukkaðir um svimandi háar upphæðir fyrir mistök
📅 02.10.2026 👁️ 0
Hornfirðingar rukkaðir um svimandi háar upphæðir fyrir mistök
Íbúum á Hornafirði brá mörgum heldur betur í brún þegar fyrstu reikningar fyrir að keyra yfir hringveginn yfir Hornafjarðarfljót voru sendir út í dag....
Þingið hafnar húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar
📅 02.10.2026 👁️ 0
Þingið hafnar húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar
Tillögur ríkisstjórnar Spánar, sem áttu að leysa húsnæðiskreppuna sem hefur leitt af sér mikla mótmælaöldu í landinu, voru felldar á spænska þinginu í...
Noregskonungur segir öryggi landsins ógnað
📅 02.10.2026 👁️ 1
Noregskonungur segir öryggi landsins ógnað
Hákon, nýkrýndur Noregskonungur, setti norska stórþingið í fyrsta sinn í dag sem þjóðhöfðingi landsins.Við setninguna flutti hann ræðu þar sem hann sa...
Vegurinn um Eyrarhlíð lokaður vegna aurskriðu
📅 02.10.2026 👁️ 1
Vegurinn um Eyrarhlíð lokaður vegna aurskriðu
Eyrarhlíð, vegurinn milli Hnífsdals og Ísafjarðar, er lokaður vegna aurskriðu sem féll á veginn.
Aur­skriða féll á veginn og honum lokað - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 0
Aur­skriða féll á veginn og honum lokað - Vísir
Lögregla hefur lokað veginum um Eyrarhlíð á Vestfjörðum eftir að aurskriða féll yfir veginn. 
Wolt hafnar því að sendlar starfi í gerviverktöku
📅 02.10.2026 👁️ 1
Wolt hafnar því að sendlar starfi í gerviverktöku
Heimsendingarfyrirtækið Wolt segir fullyrðingar um að sendlar fyrirtækisins starfi í svokallaðri gerviverktöku rangar.Gerviverktaka eigi við þegar ein...
Svarthöfði skrifar: Skúli kveinkar sér í heita pottinum
📅 02.10.2026 👁️ 1
Svarthöfði skrifar: Skúli kveinkar sér í heita pottinum
Lengi hefur verið plagsiður á Íslandi að kvarta undan sköttum og jafnvel koma sér undan að greiða þá. Nýlega kynnti fjármálaráðherra í hyggju væri að ...
Starfs­maður Reykja­víkur­borgar smitaðist af nóróveiru - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Starfs­maður Reykja­víkur­borgar smitaðist af nóróveiru - Vísir
Samkvæmt heimildum Vísis hefur einn starfsmaður á skrifstofu Reykjavíkurborgar í Borgartúni fengið staðfestingu á nóróveirusmiti í dag. Þá herma heimi...
Daniel Thomas in court accused of entering Dover migrant site
📅 02.10.2026 👁️ 0
Daniel Thomas in court accused of entering Dover migrant site
Thomas, also known as Danny Tommo, is accused of multiple offences in Dover in the spring.
„Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ - Vísir
Menntaskólinn í Reykjavík varð 180 ára í gær þó saga hans teygi sig aftur til 1056. Fjölbreytt dagskrá var á vegum skólans í vikunni, á þriðjudagskvöl...
Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“
Í dag, 2. október, er afmælisdagur Reynis heitins Árnasonar, en hann lést fyrir tæplega ári síðan, þá nýorðinn 78 ára gamall. Dóttir hans, næringarfræ...
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
„Það sló mig verulega að sjá í fréttum að það væru fjórtán pláss í notkun, fjórtán pláss í notkun á Vogi. Staðan á Íslandi er sú að það að eru á milli...
Diesel prices in the UK have hit an all time high - here's why
📅 02.10.2026 👁️ 1
Diesel prices in the UK have hit an all time high - here's why
Diesel has now hit an average of £2 a litre in the UK, the RAC motoring group says, with petrol prices also rising.
Of mörg dæmi um vonda meðferð á au-pair stúlkum hafi kallað á breytingar
📅 02.10.2026 👁️ 2
Of mörg dæmi um vonda meðferð á au-pair stúlkum hafi kallað á breytingar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir þær breytingar sem hún boðar á veitingu dvalarleyfa nauðsynlegar til þess að fá yfirsýn í mál...
Heiða í veikinda­leyfi - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heiða í veikinda­leyfi - Vísir
Þetta var tilkynnt á fundi forsætisnefndar fyrr í vikunni. Þar segir að Heiða hafi skilað inn tilkynningu um veikindaleyfi ásamt læknisvottorði þar se...
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni
📅 02.10.2026 👁️ 2
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni Fréttin2. október 2026Aðsend grein, InnlentLeave a Comment Mynd úr safni. Mannfjöldaspá ...
„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Um þriðjungur netverslunar kemur frá Kína
📅 02.10.2026 👁️ 2
Um þriðjungur netverslunar kemur frá Kína
Verslun á netinu hefur færst mjög í aukana hérlendis síðastliðin ár.„Það hefur verið mjög mikil aukning. Við fórum úr 23 milljörðum árið 2022 og sjáum...
Fag­fé­lögin kalla eftir heimild til að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fag­fé­lögin kalla eftir heimild til að slíta kjara­samningum - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu þeirra þar sem þau fordæma viðbragðsleysi Samtaka atvinnulífsins við stöðunni.  „Tilefni fundarins er sú st...
Riot police clash with students as education protests rage in France
📅 02.10.2026 👁️ 2
Riot police clash with students as education protests rage in France
More than 600 schools have faced disruption as protests over standards and lack of teachers continue.
Setja 100 milljónir tunna á markað til að lækka olíuverð
📅 02.10.2026 👁️ 2
Setja 100 milljónir tunna á markað til að lækka olíuverð
Leiðtogar G7-ríkjanna hafa ákveðið að setja 100 milljónir tunna af olíu á markað til að stuðla að lækkun heimsmarkaðsverð á olíu.Greint var frá þessu ...
Heiða Björg komin í veikindaleyfi
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heiða Björg komin í veikindaleyfi
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, er komin í veikindaleyfi.Þetta kemur fram í fundargerð forsæti...
Yfir tvö þúsund handteknir í mótmælum nemenda
📅 02.10.2026 👁️ 2
Yfir tvö þúsund handteknir í mótmælum nemenda
Það er víða eldfimt í Frakklandi, jafnvel í orðsins fyllstu merkingu. Eldar hafa logað nokkuð víða um landið í dag í mótmælum sem framhaldsskólanemar ...
Woman at centre of Cornell rape inquiry 'failed' by officials, says New York governor
📅 02.10.2026 👁️ 2
Woman at centre of Cornell rape inquiry 'failed' by officials, says New York governor
The woman, known as Jane Doe, alleges she was raped by seven students at a fraternity house at the university in 2024.
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður segir barnavernd ekki hafa gripið nægilega hratt inn í mál þar sem staðfest sé að börn hafi verið vanrækt og mis...
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
Douglas segir frá þessu 42 ára gamla framhjáhaldi í nýrri ævisögu sinni, One Helluva Ride, sem kemur út þann 6. október næstkomandi.  Þegar kvikmyndin...
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
📅 02.10.2026 👁️ 2
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
The host says she is "fine" but getting checked after leaving This Morning midway through Friday's show.
Alison Hammond has heart check-up in hospital after rushing off This Morning while on air
📅 02.10.2026 👁️ 0
Alison Hammond has heart check-up in hospital after rushing off This Morning while on air
The host says she is "fine" but getting checked after leaving midway through Friday's This Morning.
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
Í byrjun september var drengur á unglingsaldri bundinn af öðrum ungmennum þannig að hann var ósjálfbjarga og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss. S...
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
Málflutningur var í aðalmeðferðinni í dag og fer héraðssaksóknari fram á 16 ár. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í...
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
📅 02.10.2026 👁️ 2
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
Móðir ungs manns með downs heilkennið og einhverfugreiningu sagði frá því í Þetta helst að hún hefði áhyggjur af heilsu hans. Eftir að hann flutti að ...
Intensified Russian strikes are tearing Kyiv apart, Klitschko warns
📅 02.10.2026 👁️ 1
Intensified Russian strikes are tearing Kyiv apart, Klitschko warns
Vitaliy Klitschko says Ukraine's capital is in a "very dramatic situation" as Russia hits critical infrastructure.
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
Enginn sætir gæsluvarðhaldi vegna málsins eins og stendur. Þetta staðfestir E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglun...
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
📅 02.10.2026 👁️ 2
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, þvertekur fyrir að ósætti hafi verið á milli hans og Harðar Arnarsonar sem lét í gær af störfum...
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
Héraðssaksóknari krefst hámarksrefsingar, eða 16 ára fangelsis, yfir Georgios Ntentes grískum manni sem er ákærður um að hafa banað portúgölskum manni...
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
📅 02.10.2026 👁️ 2
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, skipaði Letitiu James í embætti sérstaks saksóknara til að rannsaka ásakanir um að konu hefði verið nauðgað af hóp...
Spanish PM Sánchez loses key housing crisis vote after eviction of woman, 87
📅 02.10.2026 👁️ 1
Spanish PM Sánchez loses key housing crisis vote after eviction of woman, 87
The defeat raises pressure on Sánchez to call a snap election, after a series of scandals affecting his party and allies.
Bæklunarskurðlæknir með mikilvæg skilaboð til fólks á GLP-1 lyfjum
📅 02.10.2026 👁️ 2
Bæklunarskurðlæknir með mikilvæg skilaboð til fólks á GLP-1 lyfjum
Bæklunarskurðlæknirinn Brian I. Neannunu hvetur fólk til að vera meðvitað um áhættur þyngdartapslyfja á borð við Ozempic, Wegovy og Mounjaro.Hann ræði...
Watch: Why students in France are protesting
📅 02.10.2026 👁️ 2
Watch: Why students in France are protesting
Demonstrations started in the French capital, then spread across the country in the days that followed.
Varpa fram kenningum um uppsögn Harðar: „Annars eigið þið skilið að sitja uppi með sögusagnir“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Varpa fram kenningum um uppsögn Harðar: „Annars eigið þið skilið að sitja uppi með sögusagnir“
Hörður Arnarson ákvað í gær að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar eftir 17 ár í starfi, fór hann beint í frí og ætlar svo að starfa úr októb...
Vildu forsjá barna sinna til baka og hótuðu að hætta við skilnaðinn ef þau fengju ekki sínu framgengt
📅 02.10.2026 👁️ 2
Vildu forsjá barna sinna til baka og hótuðu að hætta við skilnaðinn ef þau fengju ekki sínu framgengt
Landsréttur hefur svipt hjón forsjá fjögurra barna sinna vegna langvarandi heimilisofbeldis og óforsvaranlegra uppeldisaðstæðna. Fjölskyldan kom til Í...
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun
📅 02.10.2026 👁️ 2
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun Fréttin2. október 2026Björn Bjarnason, InnlentLeave a Comment Hörður Arnarson, fv. forstjóri Landsvirkjunar. Bjö...
„Við erum ó­þolin­móð“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Við erum ó­þolin­móð“ - Vísir
Greint var frá því í sameiginlegri yfirlýsingu Hafnarfjarðar og Tækniskólans þann 14. september að samkomulag aðilanna um uppbyggingu nýs húsnæðis við...
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól Fréttin2. október 2026Aðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Haustið kemu...
Former priest Chris Brain guilty of raping and assaulting women
📅 02.10.2026 👁️ 1
Former priest Chris Brain guilty of raping and assaulting women
The leader of Sheffield's former Nine O'Clock Service movement is facing prison for abusing 13 women.
London Fire Brigade named in Met's investigation file on Grenfell
📅 02.10.2026 👁️ 2
London Fire Brigade named in Met's investigation file on Grenfell
The brigade is among 20 organisations the police have compiled evidence against since 2017.
„Drepið hana!“ – Lögreglukona elt og barin í París á meðan skólar og slökkvibíll eru brenndir
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Drepið hana!“ – Lögreglukona elt og barin í París á meðan skólar og slökkvibíll eru brenndir
Mótmæli framhaldsskólanemenda í Frakklandi vegna kennaraskorts, yfirfullra bekkja og lélegs skólahúsnæðis hafa staðið frá 21. september, eða í tæpar t...
Disruptive passengers could be banned from multiple airlines under new UK rules
📅 02.10.2026 👁️ 2
Disruptive passengers could be banned from multiple airlines under new UK rules
Passengers who seriously disrupt flights or behave dangerously could find themselves banned from travelling with multiple airlines under new measures ...