Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi flokkanna í Kópavogi. Það er þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi fengið hreinan meirihluta bæjarfulltrúa í sveitarstjórnarkosningum.
Í fréttatilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi segir að Ásdís Kristjánsdóttir verði áfram bæjarstjóri.
Meirihlutaflokkarnir boðuðu til kynningar á meirihlutasáttmála sínum klukkan 14 í dag við Geðræktarhús Kópavogs. Hann byggir á sjö megináherslum sem fela í sér 55 verkefni sem sett verða í forgang yfir kjörtímabilið.
„Lögð er áhersla á áframhaldandi ábyrgan rekstur sveitarfélagsins þar sem afraksturinn skili sér til heimila í formi betri þjónustu og lægri skatta, þar á meðal fasteignagjalda sem meirihlutinn leggur áherslu á að verði áfram þau lægstu meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningunni.
Staðið verði vörð um séreignastefnuna og í allri uppbyggingu tryggt fjölbreytt húsnæði sem mæti þörfum ólíkra heimila. Þá verði stutt við tekjulágar fjölskyldur í félagslegu húsnæði svo þeim skapist rými til að safna fyrir eigin húsnæði.
Skoðaðir verði möguleikar á uppbyggingu eigin hitaveitu Kópavogsbæjar með það að markmiði að lækka kostnað heimila og fyrirtækja í Kópavogi.
„Í skóla- og fjölskyldumálum er lögð áhersla á að skólar Kópavogs séu í fremstu röð. Meðal verkefna er að fjölga faglærðum grunnskólakennurum, tryggja nemendum á unglingastigi aðgang að fartölvum, efla íslenskukennslu fyrir börn af erlendum uppruna og bjóða heimgreiðslur frá 12 mánaða aldri. Haldið verði áfram með Kópavogsmódelið í leikskólamálum og það þróað enn frekar.“
Áfram verði lögð áhersla á að bæta og byggja upp aðstöðu til að mæta þörfum barna og ungmenna í Kópavogi. Frístundastyrkur muni hækka og helgaropnanir muni lengjast. Þá verði kannaðar forsendur þess að opna nýjan golfvöll í bænum.
„Aðrar áherslur snúa meðal annars að fallegum bæjarbrag og framsýnu skipulagi, öruggum og greiðum samgöngum fyrir alla ferðamáta, auknum lífsgæðum og bættri lýðheilsu, vernd grænna svæða og öflugu menningarlífi, svo sem með árlegri Kópavogsbæjarhátíð.“