Mjaldur sást á sundi á Reyðarfirði nýlega. Mjaldrar eru sjaldséðir gestir við Íslandsstrendur.
Tinna Hrönn Smáradóttir, íbúi á Fáskrúðsfirði, var að keyra frá Reyðarfirði til Fáskrúðsfjarðar þegar hún sá glitta í hvítt dýr í sjónum.
„Hvíti liturinn var áberandi og ég ákvað að stoppa bílinn og fara að horfa. Þá sé ég að þetta er hvalur en ég hafði ekki séð hann svona áður,“ segir Tinna í samtali við mbl.is.
Tinna hefur ekki áður séð mjaldur á svæðinu þó að algengt sé að sjá hvali á þessum slóðum.
Tinna sá mjaldurinn 19. maí síðastliðinn en hefur ekki séð annan síðan þá.
Sjaldséð við landið
Mjaldur er tegund af tannhval sem er hvítur á lit með ekkert horn á baki.
Dýrið heldur sig í Norður-Íshafi allt í kringum Norðurheimskautið. Í Atlantshafi heldur dýrið sig norður af Íslandi og er það því sjaldséð við landið.
Nokkrum sinnum hefur þó sést til mjaldra við landið. Síðast sást einn slíkur á sundi í Reykjavíkurhöfn árið 2021.
