Eins og greint var frá í morgun hafa Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsóknarflokkur ákveðið að mynda nýjan meirihluta í Reykjavík. Hafa flokkarnir komið sér saman um ákveðnar lykiláherslur fyrir kjörtímabilið.
„Við ætlum að svara ákalli borgarbúa eftir breytingum í Reykjavík. Brýnt er að ráðast í róttækar breytingar á stjórnskipulagi og rekstri borgarinnar, nýta tíma og fjármuni betur með það að markmiði að bæta þjónustu. Við ætlum að hlusta á ólíkar raddir borgarbúa, ávinna okkur traust og vinna að sátt um framtíð Reykjavíkur,“ segir í tilkynningu frá nýja meirihlutanum.
Þá kemur fram að Reykjavík eigi að veita framúrskarandi þjónustu og setja hagsmuni íbúa í fyrsta sæti.
„Þess vegna setjum við málefni fjölskyldunnar í forgang. Við blásum til stórsóknar í skólamálum, hyggjumst innleiða fjölbreyttar lausnir í leikskóla- og daggæslumálum og viljum auka aðgengi barna að skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Huga þarf vel að eldra fólki og tryggja því áhyggjulaust ævikvöld í Reykjavík.”
Þá segist meirihlutinn ætla að fjárfesta í innviðum hverfanna, stórauka húsnæðisuppbyggingu og koma fólki hraðar á milli staða.
„Við viljum tryggja samkeppnishæfni borgarinnar með því að styðja við atvinnulíf, menningu og skapandi greinar. Reykjavík á að vera lifandi og skemmtileg, frjálslynd en ekki stjórnlynd og leggja áherslu á að að mæta þörfum en ekki breyta þeim.”
Í tilkynningunni eru svo talin upp atriði sem nýi meirihlutinn ætlar að gera:
• Við ætlum að auglýsa eftir vinnustöðum til samstarfs um rekstur leikskóla eða daggæslu.
• Við ætlum að setja okkur mælanleg markmið um aukinn árangur í skólastarfi og stefna að skólakerfi í fremstu röð.
• Við ætlum að hefja samtal við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, fjármögnun hans og framkvæmdahraða.
• Við ætlum að endurskoða fyrirhugað deiliskipulag við Suðurlandsbraut í samstarfi við hagaðila.
• Við ætlum að endurskoða breytingar á gatnamótum við Höfðabakka.
• Við ætlum að stytta gjaldskyldutíma á bílastæðum í miðborginni í samvinnu við íbúa og fyrirtæki.
• Við ætlum að breyta fyrirliggjandi skipulagi nýrra hverfa í Keldnalandi og Úlfarsárdal og hefja skipulag nýrra framtíðarhverfa á Kjalarnesi, Geldinganesi, Gufunesi og Granda.
• Við ætlum að lengja opnunartíma sundlauga til kl. 22.
• Við ætlum að ráðast í hagræðingar og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu með það að markmiði að auka skilvirkni og draga úr sóun.
• Við ætlum að bjóða út sorphirðu í einu hverfi borgarinnar í tilraunaskyni svo undirbúa megi rekstrarútboð á allri sorphirðu borgarinnar.
• Við ætlum að kortleggja aðstöðumál íþróttafélaga og fjárframlög til þeirra svo forgangsraða megi verkefnum og tryggja jafnræði milli félaga.
• Við ætlum að efla stoðþjónustu við börn inni í skólum borgarinnar.
• Við ætlum að tryggja að öll börn geti tekið þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
• Við ætlum að bjóða tekjulágu eldra fólki 60.000 kr. árlegan frístundastyrk.
• Við ætlum að lækka fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði.
• Við ætlum að standa vörð um og efla græn svæði borgarinnar og ráðast í skógræktarátak.
Ítarlegri verkefnalisti verður gerður aðgengilegur á vefsíðunni verkefnalisti.is þegar nýr meirihluti tekur formlega við störfum 2. júní næstkomandi.