Stofnfundur samtakanna SJÁ var haldinn á Kjarvalsstöðum í dag. Þetta eru ný samtök sem beita sér fyrir því að þjóðin segi já í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður við Evrópusambandið í ágúst. Það sem helst greinir þessi samtök frá öðrum er að þau eru ætluð fólki sem hefur ekki gert upp hug sinn um aðild að ESB. Markmiðið er að búa til vettvang fyrir fólk sem hefur áhuga á að sjá samning áður en að afstaða er tekin.
Stofnendugr samtakanna eru Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur, Jónas Hagan fjárfestir og atvinnurekandi og Hjálmar Vilhjálmsson framkvæmdastjóri. Þau telja mikilvægt að Íslendingar fái tækifæri til að kynna sér af eigin raun hvað aðildarsamningur við Evrópusambandið myndi fela í sér.