Sindri Snær og Alexía að eignast sitt annað barn

Júlíus Skuggi, Sindri Snær og Alexía MistGleðifregnir
Mynd: Instagram/Sindri Snær
Parið Sindri Snær Jensson, einn af eigendum skemmtistaðarins Auto og veitingastaðanna Flatey og Yuzu, og kærasta hans Alexía Mist Baldursdóttir eiga von á sínu öðru barni.
Parið greindi frá gleðifregnunum með sameiginlegri færslu á Instagram en fyrir eiga þau soninn Júlíus Skugga sem verður þriggja ára á árinu.
„Júlíus Skuggi fær lítinn bróður í desember. Getum ekki beðið.“
Mynd: Instagram/Sindri Snær
Mynd: Instagram/Sindri Snær