Sigrún Guðjónsdóttir er fallin frá

Myndlistarkonan Sigrún Guðjónsdóttir, jafnan kölluð Rúna, er látin. RÚV greinir frá andláti hennar.
Hún var meðal ástsælustu myndlistarmanna þjóðarinnar og lét eftir sig djúp spor í íslenskri myndlist, hönnun og kennslu.
Rúna fæddist í Hafnarfirði 15. nóvember 1926, dóttir Guðjóns Guðjónssonar skólastjóra og Ragnheiðar Jónsdóttur rithöfundar. Hún nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk kennaraprófi aðeins átján ára gömul. Að því loknu hélt hún til náms við Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn.
Á ferli sínum vann Rúna að málverkum, leirlist, hönnun og bókaskreytingum. Hún var meðal stofnenda Laugarnesleirs árið 1947 og átti síðar farsælt samstarf við Bing & Gröndahl og Villeroy & Boch. Verk hennar prýða fjölmarga opinbera staði, meðal annars Laugardalshöll og Seljakirkju.
Rúna var jafnframt virtur kennari og ötull talsmaður myndlistarmanna. Hún var fyrsta konan til að leiða félagssamtök myndlistarmanna hér á landi. Hún hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 2014 og heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands árið 2023 fyrir brautryðjendastarf sitt í leirlist.