Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir yfirlýsingu sem dreift hefur verið á vegum borgaryfirvalda í York á Englandi þar sem fjallað er um áhrif fána í almenningsrými.
Á mynd sem Sigmundur birtir á samfélagsmiðlum kemur fram að sumir íbúar upplifi ákveðna fána sem „rasíska, útilokandi og sprottna úr heimsvaldastefnu“ og að slík tákn geti valdið vanlíðan eða óöryggi meðal jaðarsettra hópa.
Sigmundur bendir á að þar sé verið að vísa til þjóðfána Englands og Bretlands.
„Hvaða fána haldið þið að verið sé að ræða hér? Jú, þjóðfána Englands og Bretlands,“ skrifar hann.
Segir innflytjendur hafa valið Bretland vegna betri lífskjara
Í færslu sinni segir Sigmundur að um sé að ræða fána lands sem fólk hafi kosið að flytja til vegna þess að aðstæður þar væru betri en í heimalöndum þess.
„Landsins sem tók á móti því og veitti því öryggi, velferð og tækifæri,“ skrifar hann.
Hann telur jafnframt að með slíkum yfirlýsingum sé verið að láta undan kröfum fólks sem fyrirlíti sameiningartákn þjóðarinnar og vilji grafa undan samheldni samfélagsins.
Varar við því að gefa eftir gagnvart öfgum
Sigmundur segir York aðeins vera eitt dæmi um þróun sem hann telur sjáanlega víðar í Bretlandi og á Vesturlöndum.
„Jórvík (York) er bara eitt dæmi um undirgefni stjórnvalda gagnvart þeim sem vega að grunnstoðum samfélagsins í Bretlandi og víðar og alls ekki það versta,“ skrifar hann.
Hann varar við því að láta stöðugt undan gagnvart öfgafullum sjónarmiðum.
„Ef hinn skynsami meirihluti lætur stöðugt undan öfgamönnunum munu þeir ganga sífellt lengra og að lokum verða afleiðingarnar hræðilegar fyrir alla,“ segir Sigmundur Davíð.