Sextán ára stúlka er grunuð um aðild að líkamsárás á fjórtán ára stúlku við verslunarmiðstöðina Fjörð í Hafnarfirði um helgina. Skýrsla hefur ekki verið tekin af eldri stúlkunni og til rannsóknar er hvort fleiri hafi komið að árásinni.
Þetta staðfestir Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Mbl.is greindi fyrst frá því að eldri stúlka væri grunuð.
Fjórtán ára stúlka var flutt á sjúkrahús eftir að hún fannst meðvitundarlaus í bílakjallara seint á laugardagskvöld. Skúli segir stúlkuna hafa verið með brákað rifbein, kúlu á höfði, marbletti og skrámur. Hún hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi.
Skúli segir það meðal annars verkefni lögreglu að óska eftir og skoða myndefni úr öryggismyndavélum á svæðinu.