Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í aðgerðum lögreglunnar á Akureyri í gær. Margt er um manninn í bænum yfir verslunarmannahelgina en hátíðin Ein með öllu fer þar fram.
Andri Freyr Sveinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri, staðfestir að sérsveit ríkislögreglustjóra hafi aðstoðað lögreglu í aðgerð á Akureyrarvelli í gærkvöld, þar sem tónleikar FM95BLÖ fóru fram.
Vilja ekki sjá svona
Níu voru handteknir í fyrstu en átta var sleppt á staðnum. Einn reyndist vera með hníf á sér og var vistaður í fangageymslu í nótt. Hann situr þar enn að sögn Andra og verður yfirheyrður í dag.
Lögreglu hafi borist áreiðanleg ábending um að einhver í hópnum væri með vopn á sér. Þeir hafi talið brýnt að bregðast hratt og vel við enda sé vopnaburður í mannmergð óásættanlegur. Það hafi þó ekki komið til þess að einstaklingurinn hafi ógnað neinum með hnífnum.
„Við viljum alls ekki sjá svona mál, þannig að við förum alveg fast í allar aðgerðir þegar kemur að vopnum, sérstaklega þegar það er mikið um fólk í kring.“
Árásarmaður flúði vettvang alvarlegrar líkamsárásar
Stórfelld líkamsárás var tilkynnt til lögreglu í nótt og segir Andri hana ekki tengjast hópnum. Hún hafi átt sér stað í miðbæ Akureyrar í nótt þar sem til átaka hafi komið.
Árásarþoli hafi verið fluttur til aðhlynningar á Sjúkrahúsi Akureyrar. Árásarmaðurinn hafi flúið vettvang og málið sé nú í rannsókn. Hann kveðst ekki vilja tjá sig um hvort lögregla viti hver árásarmaðurinn sé.
Aðspurður segir hann engin kynferðisbrot hafa verið tilkynnt til lögreglu yfir helgina. Þá hafi enginn verið stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum.
„Það er margt mjög ánægjulegt þó að það hafi verið mikill erill. Heilt yfir hefur þetta gengið rosalega vel og ljóst að það er búið að pæla í mörgu þegar kemur að skipulagningu.“