Warning: SQLite3::exec(): database is locked in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/includes/functions.php on line 154

Warning: SQLite3::exec(): database is locked in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/includes/functions.php on line 155
Sérstakri nefnd fólgið að endurskoða fyrri umferð forsetakosninganna

Sérstakri nefnd fólgið að endurskoða fyrri umferð forsetakosninganna

Sérstakri nefnd fólgið að endurskoða fyrri umferð forsetakosninganna

Yfirkjörstjórn í Perú hefur ákveðið að hefja ítarlega endurskoðun á fyrri umferð forsetakosninga sem haldnar voru fyrir þremur vikum. Sérstakri nefnd innlendra og erlendra sérfræðinga hefur verið falið verkefnið. Þannig á að tryggja að talningin byggi á heiðarleika og gegnsæi svo kjósendur geti treyst niðurstöðunum þegar þær liggja fyrir.

Miklar tafir hafa orðið á talningu kjörseðla enda hafa brigður verið bornar á gildi þúsunda þeirra. Þegar 97 prósent atkvæða hafa verið talin eru hægrimaðurinn Roberto Sanchez og íhaldsmaðurinn Rafael Lopez Aliaga enn nánast hnífjafnir með um tólf prósent hvor.

Aðeins 27.500 atkvæði skilja þá að. Brýnt er að skera úr um hvor þeirra mætir hægrikonunni Keiko Fujimori í seinni umferðinni 7. júní. Hún hefur fengið rúm 17 af hundraði atkvæða. Hún er dóttir fyrrum forseta landsins Albertos Fujimori.

Mikið skipulagsleysi einkenndi kjördaginn í höfuðborginni Líma, sem olli því að tugþúsundir gátu ekki greitt atkvæði fyrr en daginn eftir. Talning atkvæða í borginni gekk afar hægt og á meðan henni stóð fundust kjörkassar í ruslagámi.

Kröfu Aliagas um endurkosningu í Líma var hafnað en hann var borgarstjóri þar um hríð. Kosningaskylda er í Perú og því skunduðu meira en 27 milljónir á kjörstað dagana 12. og 13. apríl til að velja á milli 35 forsetaframbjóðenda. .

#endurskoða #fyrri #fólgið #nefnd #sérstakri


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-05-03-serstakri-nefnd-folgid-ad-endurskoda-fyrri-umferd-forsetakosninganna-474157

Warning: SQLite3Stmt::execute(): Unable to execute statement: database is locked in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/includes/functions.php on line 18

Fatal error: Uncaught Error: Call to a member function fetchArray() on false in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/includes/functions.php:21 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(260): getRecentArticles() #1 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #2 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/includes/functions.php on line 21