Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum hefur ógilt þá stjórnvaldsákvörðun að aflétta þvingunaraðgerðum gegn Ítalanum Francescu Albanese, sérstökum sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna í málefnum Palestínu.
Í tilkynningu á vefsíðu fjármálaráðuneytis Bandaríkjanna kemur fram að Albanese sé aftur á svörtum lista sem þýðir að útilokað er fyrir hana að nota greiðslukort og sinna margvíslegum bankaviðskiptum.
Albanese hefur í starfi sínu gagnrýnt ísraelsk stjórnvöld harðlega vegna illrar meðferðar og árása þeirra á Palestínumenn á Gaza.
Utanríkisráðherrann Marco Rubio tilkynnti um þvingunaraðgerðirnar síðasta sumar og sagði hana styðja hryðjuverk og fyrirlíta Bandaríkin, Ísrael og Vesturlönd ásamt því sem hún væri stækur gyðingahatari.
Ísraelsstjórn hefur einnig sakað Albanese um gyðingahatur, sem hún segir vera af og frá. Vika er síðan umdæmisdómari úrskurðaði að aflétta skyldi þvingunaraðgerðum gegn Albanese með þeim orðum að almannahagsmunir fylgdu réttinum til tjáningarfrelsis.