Sagt er að Netflix hafi nýtt sér orðróm um að Meghan Markle myndi bætast í leikarahóp þáttanna The Gentlemen eftir Guy Ritchie, í þeim tilgangi að kynna aðra þáttaröð.„Sumir í hennar nánasta hring telja að hún hafi verið notuð til að kynna aðra þáttaröðina, þar sem vitað var að hún yrði ekki jafn góð og sú fyrsta og þar sem þriðja þáttaröðin hafði þegar verið samþykkt,“ sagði vinur hertogaynjunnar af Sussex í samtali við Telegraph.
Segja Netflix hafa notað orðróm um Markle til markaðssetningar Herramannanna