Íbúi á Akureyri segist hafa orðið fyrir alvarlegri líkamsárás af hálfu nágranna síns eftir að hann fór út á svalir heimilis síns til að reykja sígarettu.
Maðurinn, sem er að eigin sögn transmaður, greinir frá atvikinu í færslu á Facebook undir yfirskriftinni „Nágranni úr helvíti“ og birti tvö myndbönd sem tekin voru meðan á átökunum stóð.
Hann segist hafa sett upptöku af stað í símanum þar sem hann hafi vitað að nágranninn væri orðinn óútreiknanlegur vegna neyslu.
„Jæja, í dag var reynt að drepa mig,“ skrifar hann.
Segir nágrannann hafa komið yfir á svalirnar
Að sögn mannsins hóf nágranninn að öskra að honum og viðhafa niðrandi ummæli um kyn hans og kynfæri eftir að hann fór út á verönd til að reykja.
Maðurinn segir að hann hafi í fyrstu ekki svarað nágrannanum en síðan beint myndavélinni að honum. Á næstu mínútum hafi nágranninn ögrað honum og komið yfir á verönd hans.
„Allt í einu er hann kominn alveg upp að mér og talar um hvað ég er lítill. Þá bið ég hann tvisvar um að láta mig vera og fara heim til sín,“ segir í færslunni.
Á myndbandinu má heyra hávær orðaskipti og sjá mann koma inn á svalirnar. Upptakan verður síðan óstöðug þegar átök hefjast.
Segist hafa verið lyft upp í hálstaki
Maðurinn segist hafa snúið sér að svalarhurðinni og ætlað inn í íbúð sína þegar nágranninn greip um háls hans.
„Þá grípur hann um hálsinn á mér og lyftir mér í loftið, sveiflar mér þar um og utan í stólana sem eru á svölunum hjá mér. Ég man ekki mikið,“ skrifar hann.
Í síðara myndbandinu má heyra hann segja að honum sé meinað að komast aftur inn á heimili sitt.
Hann kallaði til móður sinnar, sem var inni í íbúðinni, og bað hana að koma út. Annar nágranni kom einnig að og reyndi að stöðva átökin.
Maðurinn segir að hann hafi á þessum tímapunkti farið í hálfgert minnisleysi vegna áfallsins. Hann telur að nágranninn hafi kýlt sig áður en honum tókst loks að komast fram hjá honum og inn í íbúðina.
Lögregla handtók manninn
Að sögn mannsins hringdi hann tafarlaust í lögreglu eftir að hann komst inn. Lögreglumenn hafi komið á vettvang og handtekið nágrannann.
Hann leitaði í kjölfarið á Sjúkrahúsið á Akureyri til að fá áverkavottorð og hyggst leggja fram kæru vegna árásarinnar.
Ekki liggur fyrir hvort nágranninn hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald eða hvaða rannsóknaraðgerðir lögregla hefur gripið til.
Maðurinn segist nú óttast framhaldið og spyr hvers vegna ástandið hafi þurft að ganga svo langt áður en gripið var til aðgerða.
„Hvað gerist næst? Verð ég myrtur? Verður einhver eftirfylgni? Ég hugsa ekki,“ skrifar hann.
Lögreglan á Akureyri vildi ekki tjá sig um málið.