Fjölskylda Sindra Freys Jenssonar, sem var saknað í Pattayja í Taílandi, segist hafa fengið áreiðanlegar upplýsingar um að hann sé þar í varðhaldi. DV greindi frá því á miðvikudaginn að Sindra væri saknað eftir að systir hans leitaði eftir aðstoð á samfélagsmiðlum.
Systir hans greinir nú frá því að fjölskyldunni hafi borist upplýsingar um að Sindri sé í varðhaldi á Pattaya og sé alþjóðadeild ríkislögreglustjóra nú að vinna að því að fá þetta staðfest. Fjölskyldan þakkar þeim sem hafa aðstoðað við leitina og sent þeim kveðjur.
„Við fjölskyldan höfum fengið áreiðanlegar upplýsingar um að Sindri sé í varðhaldi á Pattaya og er Alþjóðadeild ríkislögreglunnar að vinna að því að fá það staðfest hjá Taílenskum yfirvöldum. Okkur langar að þakka öllum þeim sem hafa sent okkur kveðjur og aðstoðað okkur við leitina. Það er alveg ómetanlegt að sjá hversu margir hafa haft samband og boðið fram aðstoð sína og í gegnum allt þetta frábæra fólk bæði hér á íslandi og úti höfum við náð að þrengja leitina og að lokum komast að því (vonandi) hvar hann hann er“
Sjá einnig: Leitað að Sindra Frey í Thailandi