Viðræður um inngöngu í Evrópusambandið er eina leiðin til að fá endanleg svör við mörgum af þeim spurningum sem enn er ósvarað, að mati Helgu Völu Helgadóttur, varaformanns Evrópuhreyfingarinnar. Hún telur að hagsmunum Íslands sé betur borgið innan ESB og segir nær öruggt að vextir myndu lækka við inngöngu. Vitnar hún þar til reynslu annarra þjóða sem gengið hafi í sambandið. Hún segir krónuna hafa valdið óstöðugleika og að með upptöku evru yrði hér meiri efnahagslegur stöðugleiki.
Þeir sem græða á vaxtaumhverfinu á Íslandi eru þeir ríku
Helga Vala segir að vaxtaumhverfið á Íslandi gagnist fyrst og fremst þeim sem eigi mikinn pening. Þeir sjái sjóðina stækka á meðan að venjulegt fjölskyldufólk greiði fyrir þetta með háum húsnæðisvöxtum. Hún segir erfitt að útskýra það fyrir bæði ungu fólki og útlendingum afhverju verðtrygging sé við líði. Íslendingar þurfi í raun að greiða húsnæðið sitt a.m.k. fjórum sinnum út af háu vaxtastigi og verðbólgu.
Í samtalinu við Patrik segur hún að innganga í ESB snúist líka um að tilheyra hópi vina- og lýðræðisþjóða. Það geti vel farið svo að Ísland þurfi að greiða með sér við inngöngu en í raun megi oft líkja þátttöku Íslands í alþjóðasamstarfi við frekan ungling. Hann heimti húsnæði og mat en nenni aldrei að fara út með ruslið.
Segir Heimssýn og Evrópuhreyfinguna eins og svart og hvítt
Patrekur er þeirrar skoðunar eftir viðtölin við bæði formann Heimssýnar og varaformann Evrópuhreyfingarinnar að þau svari sömu spurningum á gjörólíkan hátt. Honum finnst áhugavert að á meðan Helga Vala sjái kosti við samningsviðræður, jafnvel þótt þær leiði ekki til samnings, sjái formaður Heimssýnar bara galla við þær.