Tæplega 90 starfsmönnum Reykjavíkurborgar hefur verið sagt upp. Tekin var ákvörðun um málið á aukafundi borgarráðs í morgun.
Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í borginni, segir undarlegt hvernig staðið var að breytingunum, boðað hafi verið til aukaborgarráðsfundar svo hægt væri að drífa í gegn meiriháttar breytingar sem muni hafa áhrif á fjögur hundruð starfsmenn.
„Þannig okkur fannst eðlilegt að þetta fengi umfjöllun í borgarstjórn en ástæðan fyrir því að þau halda þennan auka borgarráðsfund er svo hægt sé að fullafgreiða málið án þess að borgarstjórn komi að málinu.“
Pétur segir ljóst að málið hefði þurft lengri afgreiðslu og þá hafi fulltrúar Samfylkingarinnar í velferðarráði og skóla- og frístundaráði haft kost á að koma sínum tillögum á framfæri.
Reykjavíkingar eigi ekki eftir að finna fyrir breytingunum
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir uppsagnirnar miða að því að draga úr yfirbyggingu, 86 starfsmönnum verður sagt upp og af þeim fá 54 ekki áframhaldandi starf en 32 fá boð um ný eða breytt störf. Borgarbúar eiga ekki að finna fyrir breytingunum að sögn borgarstjóra.
„Ég held að þetta sé nauðsynleg tímasetning. Hún á ekki að fela í sér neitt þjónusturof. Við erum bara að skera niður í yfirbyggingunni, ekki framlínuþjónustunni. Fólk mun áfram fá þjónustuna á þeim stöðum sem það er vant að fá hana í sínu nærumhverfi. Íbúar eiga ekki að finna fyrir þessari breytingu eða að hún komi niður á þjónustu við þá.“
Enn langt í land
Hagræðing á ársgrundvelli er talin nema um 900 milljónum króna. Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar; Vestur-, Norður-, Austur- og Suðurmiðstöð verða lagðar niður sem sérstakar skipulagseiningar sem og frístundamiðstöðvarnar Brúin, Kringlumýri, Miðberg og Tjörnin auk Keðjunnar og Virknihúss.
Hildur segir að þrátt fyrir miklar breytingar á stjórnkerfi borgarinnar undanfarinna missera sé enn langt í land.
„Veruleikinn er auðvitað sá að við tökum við mjög erfiðum hallarekstri hérna í borginni og við þurfum að ráðast í hagræðingaaðgerðir til þess að ná rekstrinum í þann farveg sem við viljum sjá hann að skattgjöld dugi hérna fyrir útgjöldum og það er nokkuð langt í land.“