Það er ekkert frí á sauðburðavaktinni að þó það sé kosninganótt. Ágúst Ólafsson fréttamaður heimsótti Valþjófsstað í Fljótsdal þar sem bóndinn Einar er að störfum. Farið er að síga á seinni hlutann í sauðburðinum.
„Þær eru búnar að bera 26 í dag, um það bil. Þannig þetta er búið að vera rífandi gangur í dag og nóg að gera,“ segir Einar.
Fólkið á Valþjófsstað missir þó ekki af kosningunum þrátt fyrir að vera að störfum úti í fjárhúsi. Sjónvarp er inni á setustofu.
„Maður þarf að fylgjast með þessu eins og öðru sko,“ segir Einar. „Það þurfa allir að hafa allt á hreinu á þessum slóðum. Þó að við séum uppi í afdal þá erum við ekkert út úr tengingu við umheiminn þó að sumir vilji meina það.“
Einar segir mikilvægt að hafa góða aðstöðu við sauðburðinn.
„Við búum hérna liggur við á þessum tíma.“