Sár vonbrigði á tímum mikilla breytinga
Formaður Blaðamannafélags Íslands segir það vonbrigði að sjónvarpsfréttir Sýnar hafi verið lagðar niður. Hún segir mikilvægt að almenningur gerist áskrifendur að íslenskum fréttum.
„Þetta eru sár vonbrigði, þótt þetta komi ekki endilega á óvart,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, um ákvörðun stjórnenda Sýnar að leggja niður framleiðslu á sjónvarpsfréttahluta Sýnar. Þetta eru umfangsmiklar breytingar í íslensku fjölmiðlalandslagi sem hefur verið að dragast saman undanfarinn áratug og er svo komið að það er aðeins ein sjónvarpsfréttastofa eftir, sem er hjá Ríkisútvarpinu. Blaðamannafélagið hefur fengið tilkynningu um ákvörðunina en ekki liggur fyrir hversu mörgum hefur verið sagt upp á fréttastofunni.
„Þetta er ferðalag sem Sýn var þegar lagt af stað með,“ segir Sigríður Dögg en það slitnaði upp úr samningaviðræðum Sýnar við Símann fyrir skömmu þar sem allir fréttamiðlarnir voru boðnir til sölu nema sjónvarpsfréttahlutinn.
Sjónvarpsfréttir með meira traust
„Við vorum vongóð um að þau sæju tækifærið í að halda áfram, en að sjá félagsmenn okkar missa vinnuna er ömurlegt,“ segir Sigríður.
Hún segir þetta þróun sem sé að gerast víða. „Stjórnvöld hafa …