Þýskaland sótti sigur gegn Bandaríkjunum, 2:1, í Chicago í æfingaleik þjóðanna fyrir heimsmeistaramótið sem haldið er í Norður-Ameríku í dag.
Kai Havertz braut ísinn eftir aðeins tvær mínútur en undir lok fyrri hálfleiks jafnaði Antonee Robinson, leikmaður Fulham, metin með þrumufleyg fyrir utan teig.Það var hins vegar Leroy Sané sem skoraði sigurmarkið á 57. mínútu.
Bandaríkin eru í 16. sæti á heimslista FIFA á meðan Þýskaland er í 10. sæti en þjóðin hefur átt slæmu gengi að fagna á síðustu stórmótum eftir að hafa orðið heimsmeistari árið 2014.
Bandaríkin ásamt Mexíkó og Kanada eru gestgjafar heimsmeistaramótsins sem hefst á fimmtudaginn þegar Mexíkó tekur á móti Suður-Afríku.