Tíð fundahöld eru hjá ríkissáttasemjara vegna viðræðna flugmanna og flugvirkja við Icelandair um nýja kjarasamninga.
Ríkissáttasemjari sendi samninganefndir flugfélagsins og flugmanna inn í helgina með heimavinnu til að undirbúa næsta samningafund á morgun.
Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir að viðræðum miði ágætlega.
„Við áttum góðan fund á föstudaginn og miðaði ágætlega þar. Við erum með smá heimaverkefni um helgina frá sáttasemjara hvað varðar gögn og slíkt. Við ætlum að hittast aftur á morgun til þess að halda því áfram.“
Jón Þór segir mjög miður að flugferðir hafi fallið niður undanfarið. Hann segir ástæðurnar fyrir því þó vera nokkrar: hluti sé áhafnaskortur, annað vegna viðhaldsmála og eins hafi það áhrif að afhendingu flugvélar seinkaði í vor.
„Okkar tillaga er sú að gera einhverjar minniháttar breytingar og reyna að liggja á árunum í sumar en vera þá með vinnufrið til að ræða flóknari málefni til hliðar, segir Jón Þór og staðfestir að þingmenn hafi lagt til að gerður yrði skammtíma kjarasamningur fram á haustið.
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, segir að það þokist hægt í viðræðum félagsins við Icelandair. Síðasti fundur var á fimmtudag og annar hefur verið boðaður á þriðjudag.
Einni flugferð var aflýst í dag, ferð til Stokkhólms fyrir hádegi. Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta, segir að það sé vegna sama flugvélaskorts og olli því að þremur ferðum var aflýst í gær. Félagið átti að fá Airbus-þotu afhenta í vikunni en það tefst fram í júní.