Sam­föngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig - Vísir

Sam­föngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig - Vísir

Sam­föngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig - Vísir

Samfangarnir segja Maxwell fá mun betri meðferð en aðrir í fangelsinu. Um er að ræða fangabúðir í Bryan í Houston, þar sem konur sem dæmdar eru fyrir aðra glæpi en ofbeldisglæpi. Þar hafa konur eins Elisabeth Holmes, stofnandi Theranos, og Jen Shah, úr þáttunum The real housewives of Salt Lake city, afplánað dóma sína.

Blaðamenn CNN ræddu við nokkrar konur sem voru í fangabúðunum með Maxwell og höfðu þær allar svipaða sögu að segja.

Ein sagði yfirmann fangelsisins hafa öskrað á hóp fanga þegar ein þeirra kvartaði yfir því að barnaníðingur væri í fangabúðunum með þeim.

Flutt eftir fund með aðstoðarráðherra

Maxwell var árið 2021 dæmd í tuttugu ára fangelsi fyrir mansal, fyrir að hafa útvegað Epstein konur og táningsstúlkur til að brjóta á í gegnum árin. Hún var að afplána dóm sinn í alríkisfangelsi í Flórída en var fyrir tæpu ári síðan send í mun þægilegra fangelsi í Texas.

Fyrirspurnum fjölmiðla um af hverju hún var flutt var ekki svarað af yfirvöldum vestanhafs.

Sjá einnig: Maxwell flutt í þægilegra fangelsi

Síðar kom þó í ljós að Todd Blanche, þáverandi aðstoðardómsmálaráðherra, sem er nú starfandi dómsmálaráðherra eftir að Donald Trump, forseti rak Pam Bondi, hafði tekið viðtal við Maxwell í Flórída.

Þremur vikum eftir að Maxwell var flutt milli fangelsa birti ráðuneytið afrit og upptökur frá viðtalinu þar sem fram kom að Maxwell hafði lýst því yfir að hún hefði aldrei séð Donald Trump, sem var lengi vinur Epsteins, gera neitt ósæmilegt. Í viðtalinu við Blanche jós Maxwell lofi yfir forsetann.

„Ég sá forsetann í rauninni aldrei í nokkurs konar nuddaðstæðum. Ég varð aldrei vitni að forsetanum í neinum óviðeigandi aðstæðum á nokkurn hátt. Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn,“ sagði Maxwell.

Sögð fá sérmeðferð í fangabúðunum

Dæmdir kynferðisbrotamenn og konur eiga yfirleitt ekki rétt á því að afplána í lágmarksöryggisfangelsum vestanhafs. Sérfræðingar segja í samtali við CNN að flutningur hennar til fangelsisins í Texas hafi verið mjög óhefðbundinn.

Demókratar í dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings kvörtuðu yfir því í fyrra að þeir hefðu fengið veður af því að Maxwell fengi sérstaka meðferð í fangelsisbúðunum í Flórída. Þeir sögðu starfsfólk fangelsisins ganga fram eins og þjónar gagnvart Maxwell. Hún fengi máltíðir sendar til sín og fengi gesti eins og henni hentaði. Hún og gestir fengju jafnvel að taka með sér tölvur.

Þetta tóku konur sem CNN ræddi við undir. Þær sögðu Maxwell hafa fengið máltíðir sendar í klefa sinn og að hún hafi oft verið í fylgd vopnaðra varða. Þá hafi hún fengið að hitta gesti utan tiltekins svæðis þar sem fangar eiga að hitta gesti.

Ein kvennanna sem ræddu við CNN heitir Julie Howell. Hún var dæmd í ársfangelsi fyrir að stela tæpri milljón dala frá Tarleton-háskólanum í Bandaríkjunum og var í fangabúðunum í Bryan þegar Maxwell var send þangað.

Hún fékk tölvupóst frá eiginmanni sínum sem spurði hvort hún hefði áhuga á að svara spurningum frá blaðamanni Telegraph í Bretlandi um Maxwell.

Howell sagðist hafa miklar skoðanir á því, eins og margar aðrar konur í fangelsinu. Hún skoðaði reglur fangelsisins og ræddi við aðra fanga og komst að þeirri niðurstöðu að hún mætti ræða við fjölmiðla og ákvað því að svara spurningum blaðamannsins í skilaboðum sem hún sendi til eiginmanns síns og hann áframsendi fyrir hana.

„Hver einasti fangi sem ég hef heyrt frá er ósáttur við að hún sé hérna,“ skrifaði Howell í skilaboðunum.

„Þessar búðir eiga að vera fyrir fanga sem frömdu ekki ofbeldisbrot. Mansal er ofbeldisfullur glæpur. Hún hjálpaði til við að finna, tæla, og útvega börn fyrir Epstein.“

Enn fremur sagði Howell að aðrir fangar hefðu heyrt af því að Mawell hefði fengið fjölda morðhótana og óttuðust um öryggi sitt.

Eyðilagði helgina fyrir fangelsisstjóranum

Nokkrum dögum síðar var Howell kölluð á fund hjá næstráðanda fangelsisins sem spurði hana hvort hún kannaðist við hinn áðurnefnda breska blaðamann. Hann skammaði hana fyrir að hafa talað við hann og sendi hana í fangaklefa sinn.

Um klukkutíma síðar kom yfirmaður fangelsisins til hennar. Hún heitir Tanisha Hall og húðskammaði Howell, sem segir að Hall hafi skammað sig fyrir að eyðileggja helgina fyrir henni, þar sem síminn hjá henni hefði ekki hætt að hringja vegna ummæla hennar til blaðamannsins.

Howell segist hafa beðist afsökunar og útskýrt fyrir Hall að hún hefði sterkar skoðanir á veru Maxwell í fangelsinu þar sem brotið hefði verið á dóttur hennar á árum áður.

Þá mun Hall hafa sagt henni að það væri of seint að biðjast afsökunar. Seinna þann sama dag var Howell send í alríkisfangelsi í Houston, þar sem aðstæður fanga eru mun verri en í Bryan og fangelsið hýsir þar að auki konur og menn á mismunandi öryggisdeildum.

Á meðan hún var þar sagði hún nokkrar aðrar konur hafa verið sendar þangað, einnig frá búðunum í Bryan.

Í skýrslu sem skrifuð var um Howell segir að henni hafi verið refsað fyrir að veita blaðamanni viðkvæmar upplýsingar um öryggi í fangabúðunum auk viðkvæmra upplýsinga um aðra fanga. Henni var sleppt úr fangelsi fyrir nokkrum vikum.

„Aldrei segja þetta“

Ein af konunum sem var refsað fyrir að tjá sig um Maxwell sagði CNN, undir nafnleynd þar sem hún situr enn í fangelsi, að Hall, yfirmaður fangabúðanna í Bryan, hefði gert öðrum föngum ljóst strax þegar Maxwell var send þangað að staða hennar væri sérstök.

„Einhver í minni álmu sagði: „Þú veist, þetta gerist þegar þú kemur með barnaníðing í búðirnar“ og fangelsisstjórinn byrjaði að öskra: „Aldrei segja þetta. Ég vil ekki heyra ykkur segja þetta aftur,“ sagði fanginn.

Hún og aðrir fangar töluðu einnig um sérmeðferðina sem Maxwell mun hafa fengið í fangabúðunum.

Þessi fangi fékk einnig fyrirspurn frá blaðamanni og segist hún hafa passað sig á því að gagnrýna Maxwell ekki. Þess í stað sagði hún að Maxwell hefði aðstoðað aðra fanga og sagðist hafa verið viss um að hún hefði ekki deilt neinum viðkvæmum upplýsingum.

Innan við klukkustund eftir að hún ræddi við blaðamanninn mætti hún fangelsisstjóranum sem öskraði á hana að hún væri að ógna öryggi starfsfólks fangelsisins og skemma rannsókn Alríkislögreglu Bandaríkjanna. Hún var síðan send í fangelsið í Houston.

Sérfræðingur sem CNN ræddi við segir það rétt að konurnar hafi í raun rétt á því að ræða við blaðamenn. Þær ættu þó helst að fá leyfi hjá stjórnendum fangelsisins. Hann sagði það ekki hefðbundna starfshætti að senda konurnar í annað fangelsi fyrir að ræða við blaðamenn en líklega væri það auðveldasta lausnin fyrir stjórnendur fangabúðanna í Bryan.

#fyrir #maxwell #refsað #samföngum #tjá


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262880545d/samfongum-maxwell-refsad-fyrir-ad-tja-sig

📰 Aðrar fréttir

Konur geta erft krúnuna eftir lagabreytingar
📅 16.08.2026 👁️ 0
Konur geta erft krúnuna eftir lagabreytingar
Konur geta nú erft krúnuna í furstadæminu Liechtenstein eftir lagabreytingu sem tilkynnt var um á þjóðhátíðardegi landsins í gær. Erfðaprinsinn Alois ...
77 fórust í ferjuslysi
📅 16.08.2026 👁️ 0
77 fórust í ferjuslysi
Yfirvöld í Simbabve segja að fjöldi látinna í ferjuslysi á Kariba-vatni fyrir vikunni sé kominn upp í 72. 77 var bjargað.Ferjunni hvolfdi á þriðjudag ...
Ariana Grande leaves problems at home as her tour hits the UK
📅 16.08.2026 👁️ 0
Ariana Grande leaves problems at home as her tour hits the UK
The star plays the first of 10 dates in London, after which she will "step back" from public life.
Handtóku um 300 sem ætluðu yfir landamærin til Ceuta
📅 16.08.2026 👁️ 0
Handtóku um 300 sem ætluðu yfir landamærin til Ceuta
Yfirvöld í Marokkó handtóku 294 í gær sem ætluðu að fara frá Marokkó yfir til spænsku hólmlendunnar Ceuta. Marokkóski fjölmiðillinn Le360 greinir frá....
From making friends to managing money: Students' advice for this year's freshers
📅 15.08.2026 👁️ 0
From making friends to managing money: Students' advice for this year's freshers
BC News asked current students about the worries they had before arriving at university how they overcame them.
Men are turning to penis fillers, but are they safe?
📅 15.08.2026 👁️ 0
Men are turning to penis fillers, but are they safe?
Men who have had the procedure can expect 10-20% more girth for the next six to nine months - but it can go wrong.
Sumarflöggun allan sólarhringinn lýkur á miðnætti
📅 15.08.2026 👁️ 0
Sumarflöggun allan sólarhringinn lýkur á miðnætti
Samkvæmt nýjum fánalögum er kvöldið í kvöld síðasta kvöldið sem flagga má íslenska fánanum allan sólarhringinn. Frá og með 16. ágúst gildir því aftur ...
Fimm særðust í skot­á­rás í banda­rískum há­skóla - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Fimm særðust í skot­á­rás í banda­rískum há­skóla - Vísir
Skotárásin átti sér stað við nemendahúsnæði háskólans. Staðfest hefur verið að einn hinna særðu sé yngri en átján ára og að einn hinna særðu sé nemand...
The influencers getting bitten chasing the perfect shark shot
📅 15.08.2026 👁️ 0
The influencers getting bitten chasing the perfect shark shot
Tayane Dalazen was on a shark-diving trip in Brazil when she was attacked.
Rescuers search for survivors of powerful Indonesia earthquake
📅 15.08.2026 👁️ 0
Rescuers search for survivors of powerful Indonesia earthquake
Officials say a rapid assessment into the impact of the earthquake that destroyed hundreds of buildings and killed 47 is under way.
Þór­dís Kol­brún fékk hlýjar mót­tökur - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Þór­dís Kol­brún fékk hlýjar mót­tökur - Vísir
Þórdís hefur nú stigið fyrsta formlega skrefið sem nýr sendiherra, segir í tilkynningu sendiráðsins, en hún hefur afhent afrit af trúnaðarbréfi sínu t...
Reform UK plan would overhaul welfare system with £50bn in savings
📅 15.08.2026 👁️ 0
Reform UK plan would overhaul welfare system with £50bn in savings
The party plans to release a full 50-page plan on Monday outlining their proposed changes were they to come to power.
European Athletics Championships 2026: Amy Hunt claims third gold as Dina Asher-Smith makes history
📅 15.08.2026 👁️ 0
European Athletics Championships 2026: Amy Hunt claims third gold as Dina Asher-Smith makes history
Amy Hunt claims the third gold medal of her bid for a historic quadruple and Dina Asher-Smith makes history as Great Britain win two relay golds at th...
Komast ekki á afskekkt svæði eftir jarðskjálftann
📅 15.08.2026 👁️ 0
Komast ekki á afskekkt svæði eftir jarðskjálftann
Tjónið er mikið og þúsundir hafa flúið heimili sín eftir að jarðskjálfti af stærðinni 7,7 reið yfir Indónesíu í gærkvöld.Skjálftinn átti upptök sín un...
Ríkis­stjórn Talíbana fagnar fimm árum - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Ríkis­stjórn Talíbana fagnar fimm árum - Vísir
Stjórn Talíbana hefur frá valdtöku verið harðlega gagnrýnd af mannréttinda- og hjálparsamtökum. Þá nýtur ríkisstjórnin ekki viðurkenningar Sameinuðu þ...
Fagnað á götum Kabúl - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Fagnað á götum Kabúl - Vísir
Stjórn Talíbana hefur frá valdtöku verið harðlega gagnrýnd af mannréttinda- og hjálparsamtökum. Þá nýtur ríkisstjórnin ekki viðurkenningar Sameinuðu þ...
„Ekki samráð þegar ákvörðun hefur verið tekin og svo á að keyra að henni“
📅 15.08.2026 👁️ 0
„Ekki samráð þegar ákvörðun hefur verið tekin og svo á að keyra að henni“
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að kennarar verði að treysta því að innleiðingaráætlun ríkisstjórnarinnar varðandi breytin...
Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla - Vísir
Tillagan var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni. Guðný María Jóhannsdóttir formaður ráðsins segir breytinguna til þess að tryggja ...
„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast“
📅 15.08.2026 👁️ 0
„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast“
Sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson hefur aðra atrennu að því að synda niður Lagarfljótið endilangt á miðnætti. Hann segir aðstæður margfalt betri nú e...
Morocco detains dozens of migrants trying to cross into Ceuta - reports
📅 15.08.2026 👁️ 0
Morocco detains dozens of migrants trying to cross into Ceuta - reports
Security had been stepped up amid suggestions on social media of a second mass crossing on Saturday.
Fjöldi öku­manna á von á kæru - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Fjöldi öku­manna á von á kæru - Vísir
Í rassíu lögreglunnar reyndust sex ökumenn yfir löglegum mörkum og eiga þeir allir von á kæru. Þá reyndust nokkrir ökumenn til viðbótar vera undir áhr...
Beitti konu sína heimilisofbeldi nóttina eftir að hann hlaut árs dóm
📅 15.08.2026 👁️ 0
Beitti konu sína heimilisofbeldi nóttina eftir að hann hlaut árs dóm
Landsréttur úrskurðaði karlmann í síðustu viku í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. ágúst vegna heimilisofbeldis sem hann er talinn hafa beitt sambýl...
Merkja gervigreindartónlistarmenn sérstaklega til að aðgreina þá frá mennskum listamönnum
📅 15.08.2026 👁️ 0
Merkja gervigreindartónlistarmenn sérstaklega til að aðgreina þá frá mennskum listamönnum
Stærsta tónlistarstreymisveita heims, Spotify, ætlar að búa til sérstakt merki til að aðgreina gervigreindartónlistarmenn frá mennsku tónlistarfólki. ...
Hefði ekkert átt að koma kennurum á óvart
📅 15.08.2026 👁️ 0
Hefði ekkert átt að koma kennurum á óvart
Breytingar á einkunnagjöf hefðu ekki átt að koma kennurum á óvart, segir Inga Sæland mennta og barnamálaráðherra sem gefur lítið fyrir fullyrðingar gr...
Rósa vill sjá íslenska fánann oftar: „Fólk á að fá að flagga þegar því hentar“
📅 15.08.2026 👁️ 0
Rósa vill sjá íslenska fánann oftar: „Fólk á að fá að flagga þegar því hentar“
Rósa Guðbjartsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, segir að breytingar sem gerðar voru á fánalögunum á Alþingi fyrr á árinu hafi reynst vel. En betu...
Ísraelskir ferða­menn með ógnandi til­burði á palestínsku kaffi­húsi - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Ísraelskir ferða­menn með ógnandi til­burði á palestínsku kaffi­húsi - Vísir
Farah Al-Qasem, sem á Lava Sweets ásamt eiginmanni sínum Diyaa Atatri, segir mennina hafa komið inn í verslunina skömmu eftir að hún opnaði í morgun m...
Fimm særðir eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu
📅 15.08.2026 👁️ 0
Fimm særðir eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu
Fimm eru særðir, þar af einn lífhættulega, eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu-ríkis (e. Virginia State University) í Bandaríkjunum. Lögreglumenn b...
Ísraelar gera loftárásir í Líbanon
📅 15.08.2026 👁️ 0
Ísraelar gera loftárásir í Líbanon
Ellefu voru drepnir, þar af þrjú börn, og þrír særðust í loftárás Ísraela á suður Líbanon. Líbanska fréttastofan NNA segir að árásin hafi verið gerð á...
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík
📅 15.08.2026 👁️ 0
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík Lava Sweets & Cafe palestínskt kaffihúsi í KeflavíkÓgnandi tilburð...
Fire services 'under pressure' as evacuated residents still not home
📅 15.08.2026 👁️ 0
Fire services 'under pressure' as evacuated residents still not home
Major incidents are declared across the UK including in Stourbridge, Sandwell and Pershore.
Þyrlan sækir slasaðan mann við Hestfjall
📅 15.08.2026 👁️ 0
Þyrlan sækir slasaðan mann við Hestfjall
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fjórða tímanum vegna manns sem féll við Hestfjall í Borgarfirði.Þyrlan er nú á staðnum og til stendur að híf...
Sigmar tætir í sig málflutning Guðrúnar: „Mjög spes, vægast sagt“
📅 15.08.2026 👁️ 0
Sigmar tætir í sig málflutning Guðrúnar: „Mjög spes, vægast sagt“
„Að nota ágreining sem rök gegn aðferð til að leysa úr ágreiningi er mjög spes, vægast sagt,“ segir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar,...
Þyrlan sækir slasaðan mann á Hest­fjall - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Þyrlan sækir slasaðan mann á Hest­fjall - Vísir
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að Hestfjalli við Skorradalsvatn á fjórða tímanum vegna manns sem hafði dottið og slasað sig.
Biður Breta að staldra við eftir dauða Arday
📅 15.08.2026 👁️ 0
Biður Breta að staldra við eftir dauða Arday
Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, hefur beðið landsmenn að taka sér andartak til íhugunar eftir að Jason Arday, prófessor við Cambridge-háskól...
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels
📅 15.08.2026 👁️ 0
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels Samúel Guðmundsson, Piers Morgan og Shmuleys BoteachFramkoma Samúels stórjók áhuga á Íslandi ...
Miðflokksmenn helmingi lík­legri til að segja já en Sjálf­stæðis­menn - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Miðflokksmenn helmingi lík­legri til að segja já en Sjálf­stæðis­menn - Vísir
Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Samkvæmt honum er svo mjótt á munum fylkinganna að hann er ekki tölfræðilega marktækur en 51,5% þeirra se...
Reynslan sýnt að neyt­endur séu ekki til­búnir - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Reynslan sýnt að neyt­endur séu ekki til­búnir - Vísir
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, kveðst styðja markmið nýrrar reglugerðar Evrópusambandsins um að minnka óþarfa umbúðir, auka endu...
Frakkland orðið miðpunktur hrottalegra crypto-rána: Mannrán, pyntingar og afskornir fingur
📅 15.08.2026 👁️ 0
Frakkland orðið miðpunktur hrottalegra crypto-rána: Mannrán, pyntingar og afskornir fingur
Ný tegund skipulagðrar glæpastarfsemi hefur vaxið hratt samhliða aukinni útbreiðslu rafmynta. Í stað þess að reyna að brjótast í gegnum flókin öryggis...
Varaði við unglingum í Vesturbænum
📅 15.08.2026 👁️ 0
Varaði við unglingum í Vesturbænum
Varaði við unglingum í Vesturbænum Pablo Santos hvetur til yfirvegunar:„Ást og kærleikur til allra“ Mynd: Unsplash/Dominic Kurniawan Nýleg myndbirting...
18-year-old arrested in south Tenerife for allegedly assaulting his mother
📅 15.08.2026 👁️ 0
18-year-old arrested in south Tenerife for allegedly assaulting his mother
An 18-year-old man has been arrested in south Tenerife after allegedly physically assaulting his mother during an incident at their family home in Gra...
Segir varanlegar undanþágur í boði: „Það heitir sérlausnir“
📅 15.08.2026 👁️ 0
Segir varanlegar undanþágur í boði: „Það heitir sérlausnir“
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir að varanlegar undanþágur séu í boði þegar ríki sækja um aðild að Evrópusambandinu.„Þær eru í boði, ...
Stiklusúpa: Sturlað leikja­haust og vetur í vændum - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Stiklusúpa: Sturlað leikja­haust og vetur í vændum - Vísir
Við getum þó huggað okkur við það að haustið er yfirleitt alltaf, stundum, besti tími ársins til að spila tölvuleiki. Þetta haust virðist ætla að vera...
Halldór Jörgen Olesen: Íslensk fjölskylda borgar 150 þúsund meira á mánuði í húsnæðislán vegna krónunnar
📅 15.08.2026 👁️ 0
Halldór Jörgen Olesen: Íslensk fjölskylda borgar 150 þúsund meira á mánuði í húsnæðislán vegna krónunnar
Íslensk fjölskylda borgar 150 þúsund meira af sínu húsnæðisláni á mánuði en fjölskylda á evrusvæðinu. Þessir peningar fara í að skapa hagnað bankanna ...
Ó­sátt með fyrir­hugaða sam­einingu lögregluembætta - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Ó­sátt með fyrir­hugaða sam­einingu lögregluembætta - Vísir
Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðsins sem fundaði í vikunni. Þar er vísað í bókun S. S. S. á þeirra eigin fundi. „S. S. S. tekur undir að mikilvæ...
Hæfileikakeppni gæludýra á Hellu
📅 15.08.2026 👁️ 0
Hæfileikakeppni gæludýra á Hellu
Fjölbreytt dagskrá er í boði á bæjarhátíðinni Tðugjöldum í Rangárþingi ytra um helgina. Eitt af atriðum dagsins í dag er hæfileikakeppni gæludýra.Töðu...
Grind­vískir krakkar sneru aftur á völlinn - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Grind­vískir krakkar sneru aftur á völlinn - Vísir
Eftir rýminguna í Grindavík þann 10. nóvember 2023 fór íþróttastarf barna í Grindavík í uppnám. Þá um veturinn var haldið úti æfingum í knattspyrnu og...
Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja - Vísir
Hvort hægt verði að gera við lögnina og nota hana eða hvort leggja þurfi nýja er enn alls óljóst. Eyþór Sigurðsson verkefnisstjóri framkvæmdarinnar se...
„Önnur ríki með sér­þarfir hafa miklu meira vægi í þeirri um­ræðu“ - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
„Önnur ríki með sér­þarfir hafa miklu meira vægi í þeirri um­ræðu“ - Vísir
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- og orkumálaráðherra, ritaði grein á vefsíðu sína í morgun þar sem hann fjallaði um viðskiptakerfi Evrópusambandsins...
Sigmundur Ernir skrifar: Einokunarverslun var það einu sinni, og skal áfram verða
📅 15.08.2026 👁️ 0
Sigmundur Ernir skrifar: Einokunarverslun var það einu sinni, og skal áfram verða
Mynd Íslandssagan hefur risið og hnígið, eins og lesa má af blöð
Já skuldbindingin og EES-hættan
📅 15.08.2026 👁️ 0
Já skuldbindingin og EES-hættan
Já skuldbindingin og EES-hættan Fréttin15. ágúst 2026Erlent, Evrópusambandið, Innlent, Páll Vilhjálmsson, PistlarLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skr...