Landsframleiðsla dróst saman á öðrum ársfjórðungi en fyrri helmingur ársins eru þó enn í plús vegna þess hversu mikið landsframleiðsla jókst á fyrsta ársfjórðungi.
Þetta er niðurstaða nýrra útreikninga Hagstofunnar sem voru birtir í dag.
Samdrátturinn á öðrum ársfjórðungi var 1,1 prósent og fylgdi á eftir 3,8 prósenta hagvexti á fyrsta ársfjórðungi. Samanlagt er hagvöxtur á fyrri helmingi árs því 1,3 prósent.
Þetta er þriðja skiptið í röð sem samdráttarársfjórðungur fylgir á eftir ársfjórðungi með hagvexti.
Vöruviðskipti við útlönd ráða mestu um samdráttinn á öðrum ársfjórðungi. Aukinn halli á vöruviðskiptum miðað við sama tíma í fyrra olli því að áhrif utanríkisviðskipta á hagvöxt voru neikvæð um 2,9 prósent.
Hagstofan reiknar einnig landsframleiðslu með hliðsjón af árstíðabundnum þáttum. Samkvæmt því dróst árstíðaleiðrétt landsframleiðsla saman um 3,0 prósent frá fyrsta til annars ársfjórðungs.