Matsferill er stöðu- og framvindupróf sem ætlað var að leysa gömlu samræmdu könnunarprófin af hólmi. Hann hefur verið í þróun um nokkurt skeið en síðast voru samræmd könnunarpróf lögð fyrir grunnskólabörn á Íslandi árið 2021.
Í Síðdegisútvarpinu í síðustu viku sagði formaður menntaráðs Kópavogsbæjar að Kópavogsbær vissi enn ekki hvernig grunnskólum sínum hefði gengið í prófunum í vor í samanburði við skóla annarra sveitarfélaga. Á vef Stjórnarráðsins segir að með matsferlinum eigi stefnumótandi aðilar að geta fylgst betur með þróun námsárangurs yfir tíma, greint styrkleika og mögulegar áskoranir til þess að geta lagt til menntaumbætur.
Skilur óþreyju sveitarfélaganna
Í svari við fyrirspurn fréttastofu segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, að í þessum fyrsta áfanga af nýjum matsferli hafi megináhersla verið lögð á að skila niðurstöðum til þeirra sem nýta þær beint í skólastarfinu: nemenda, foreldra, kennara og skólastjórnenda. Það hafi verið gert við lok skólaársins.
Næsta skref sé að gera heildstæðari upplýsingar og samanburðargögn aðgengileg fyrir sveitarfélög og menntayfirvöld. Vonir standi til að þær verði tilbúnar um miðjan september.
Ég skil vel þá óþreyju sem hefur komið fram hjá sveitarfélögum enda er um að ræða afar mikilvægar upplýsingar. Gögnin geta stutt við greiningu á styrkleikum og áskorunum, markvissar umbætur í skólastarfi og þróun skólaþjónustu. Markmiðið er að upplýsingar úr Matsferli nýtist sem best til að efla skólastarf og styðja við farsæla námsframvindu barna og ungmenna.