Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins og fráfarandi forseti borgarstjórnar, segir að það sé sláandi að nýr meirihluti hafi ekki minnst á húsnæðismál og húsnæðisuppbyggingu í lykiláherslum sem kynntar voru í dag. „Það er mjög mikilvægt að byggja fyrir fólk í þörf þannig að það hafi öruggt húsaskjól. Það er ekkert að finna um það í þessum áherslum,“ segir hún.
Sanna kveðst ekki spennt fyrir áherslum nýs meirihluta. „Sem vinstrimanneskja þá er maður auðvitað ekkert spenntur fyrir hægristjórn.“ Í áherslunum er meðal annars talað um að bjóða út sorphirðu í borginni, sem Vinstrið leggst gegn. „Við vitum að það er alltaf óhagkvæmara fyrir íbúa,“ segir Sanna.
Vonar það besta
Hún segir þó gott að tryggja eigi að öll börn geti tekið þátt í skipulögðu frístundastarfi.
„En maður veltir því fyrir sér hvernig nálgunin verður á það. Við vitum að það er fátækt og efnahagslegur skortur sem hefur áhrif á getu barnafjölskyldna til að bjóða börnum sínum upp á þátttöku í íþrótta- og frístundastarfi. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig hægristjórn tekst á við það.“ Hún segist þó vona það besta.
Sanna tekur undir orð Péturs Marteinssonar um að endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins geti tafið fyrir uppbyggingu. „Fólk sem treystir á almenningssamgöngur hefur lengi verið að bíða eftir útbótum. Auðvitað hefur maður áhyggjur af því að þetta bjóði upp á frekari tafir og að fólk þurfi að bíða lengur,“ segir hún.