Dægurmálamiðillinn Puck News greindi frá þessum tíðindum fyrr í dag og hefur fjöldi fjölmiðla vestanhafs síðan greint frá fregnunum.
Samkvæmt heimildum Puck News stóð valið á milli Jay-Z og popparanna Miley Cyrus og Justin Bieber áður en rapparinn valdi á endanum sjálfan sig.
Fyrirtækið Roc Nation, sem er í eigu Jay-Z, gerði samning við NFL-deildina árið 2019 um að sjá um og pródúsera hálfleikssýningu Ofurskálarinnar og fær rapparinn greiddar fimm milljónir dala (um 600 milljónir króna) árlega fyrir verkið. Samningurinn var endurnýjaður árið 2024 og verður sýningin áfram á snærum rapparans til 2029.
Hvorki NFL-deildin né Roc Nation hafa þó brugðist við fréttunum þannig að fregnirnar eru enn óstaðfestar.
Séu þær réttar má telja líklegt að Jay-Z muni ekki koma einn fram heldur fái til liðs við sig góða samstarfsfélaga á borð við Beyonce, Aliciu Keys, Justin Timberlake og Rihönnu, svo ekki sé minnst á Kanye West.
Hálfleikssýning Ofurskálarinnar er einn stærsti menningarviðburður ársins hvert ár og koma jafnan fram á tónleikunum tónlistarstjörnur á heimsmælikvarða. Tónlistarmaðurinn Bad Bunny tróð upp á sýningunni í febrúar á þessu ári ásamt Ricky Martin og Lady Gaga og á undan honum komu Kendrick Lamar, Usher og Rihanna árin þrjú þar á undan.