Athugði: Hér að neðan eru opinskáar lýsingar á ofbeldi sem gætu valdið óhug.
Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni á Edition-hótelinu í Reykjavík í fyrra, sagðist við aðalmeðferð málsins í dag ekki hafa kyrkt dóttur sína þegar hún var drepin.
Í ákæru á hendur henni og eiginmanni hennar er þeim gefið að sök að hafa haldið dóttur hennar fastri með því að grípa um hægri upphandlegg hennar og brugðið snöru um háls hennar og þrengt að öndunarvegi hennar í drjúga stund. Af þessu á hún að hafa hlotið urmul punktblæðinga á hálsi og í andliti.
Mancel vildi lítið tjá sig um þetta þegar hún var spurð fyrir dómi hvort hún vissi til þess að dóttir hennar hefði verið kyrkt. Hún sagði að ef lögregla segði það hafa gerst þá hlyti það að vera svo. Hins vegar sagðist hún sjálf ekki hafa kyrkt hana. Hún viðurkenndi þó að hafa tekið eftir áverkum á hálsi hennar eftir að hún var látin. Hún sagðist ekki vita hvaðan þeir áverkar væru komnir.
Spurt um band í fórum Emeric
Við aðalmeðferðina í dag var nokkuð spurt um band sem talið er að Emeric, maður Mancel, hafi notað til þess setja utan um síma sinn. Á bandinu fundust blóðslettur úr dótturinni en einnig DNA-sýni úr Mancel. Mancel sagði það mögulega til komið þar sem hún hefði fært bandið þegar hún bjó um lík dóttur sinnar.
Dómari spurði Mancel hvort það hefði verið rætt að mögulega beita hengingu til þess að svipta sig lífi. Mancel sagði það geta verið en til þess að hengja sig þurfi að hengja snöruna í eitthvað. Þau hefðu ekki áttað sig á því hvernig það yrði gert. Ekki hefði verið rætt um kyrkingar heldur frekar um hengingar.
Mancel þrætti ekki fyrir hitt atriði kærunnar sem er að þau hafi stungið dóttur sína tvisvar með hnífi í brjóstkassann. Í ákæru segir að önnur stungan gekk inn að hjartanu. Samkvæmt ákærunni lést dóttirin síðar vegna lungnaþembu og rofs í hægri slegli hjartans sem leiddi til blæðingar og blóðfyllu í gollurhúsi hjartans.