Stjórn Samtaka atvinnulífsins segir að ekki komi til greina að fyrirtæki taki á sig kostnaðarauka til að koma í veg fyrir að kjarasamningum verði sagt upp. Hún vill að kjarasamningar haldi út samningstímann þrátt fyrir að verðbólga sé meiri en forsenduákvæði þeirra gerðu ráð fyrir.
Stjórnin tiltekur fimm áherslur til að bregðast við forsendubresti. Þeirra á meðal eru að ekki verði samið við verkalýðshreyfinguna um atriði sem feli í sér aukinn kostnað, svo sem með hækkun launa. Ekki stendur heldur til að semja um ný vinnumarkaðstengd réttindamál.
SA hvetur fyrirtæki til að halda aftur af verðhækkunum eins og frekast er unnt út samningstímann. Nokkur fyrirtæki hafa tilkynnt að þau hyggist fresta eða draga úr verðhækkunum á næstunni.
Stjórnin segir löngu tímabært að aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld hefji formlegt samtal um umbætur á íslenskum vinnumarkaði. Hún segir það eina af meginforsendum þess að verðbólguvæntingar hjaðni.