Nýsjálenski stórleikarinn Russell Crowe greip tennisbolta á Opna franska meistaramótinu á sunnudag. Myndband náðist af leikaranum grípa boltann og var hann í skýjunum með þetta allt saman.
Hinn 62 ára Crowe, sem gerði garðinn frægan í kvikmyndum á borð við Gladiator, A Beautiful Mind og Master and Commander, var í Stade Rolland Garros í París um helgina til að fylgjast með tennismótinu, sem er eitt það stærsta í heiminum.
Það var í leik hins þýska Alexander Zverev og hins franska Benjamin Bonzi sem bolti skaust upp í áhorfendapallana. Þar sátu Crowe og unnusta hans, hin 42 ára Britney Theriot, og áttu sér einskis ills von.
Eins og sést í myndbandinu fer boltinn í búk Crowe sem nær svo að grípa hann við mikla furðu og katínu unnustunnar. Enda fór boltinn á mjög miklum hraða. Stóð leikarinn svo upp og sýndi boltann rígmontinn.