Rússnesk yfirvöld segja Úkraínuher hafa gert óvæntar drónaárásir á Sankti Pétursborg í dag. Þar stendur nú yfir árleg efnahagsráðstefna. Vladimír Pútín Rússlandsforseti ávarpaði ráðstefnuna í gær og sagði þá tilgangslaust að funda með forseta Úkraínu fyrr en friðarsamningur lægi fyrir.
Rússar segja meira en 140 dróna hafa verið skotna niður í kringum borgina og íbúar hafa verið hvattir til að halda sig innandyra í fyrsta skipti síðan stríðið hófst fyrir meira en fjórum árum.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir herinn hafa hæft hernaðarleg skotmörk með árásum sínum sem hafi verið viðbragð við árásum Rússa.
Yevhen Karas, yfirmaður einnar þeirra hersveita sem tóku þátt í drónaárásunum, sagði í samtali við breska fjölmiðilinn BBC að auðvelt væri að hitta skotmörk innan Rússlands.
„Við fljúgum yfir Rússlandi líkt og það sé okkar eigið landsvæði. Það er nánast engin mótspyrna og það er ekki erfitt að hæfa skotmörk,“ sagði Karas.
Aleksander Drozdenko, héraðsstjóri í Leníngrad, segir árásirnar hafa valdið eldsvoða í ótilgreindri herstöð og að íbúar hafi verið fluttir á brott vegna þeirra. Hann sagði byggingar á svæðinu einnig hafa orðið fyrir einhverjum skemmdum.
Í opnu bréfi sínu til Pútíns á fimmtudag kallaði Zelensky eftir vopnahléi á milli ríkjanna tveggja og viðræðum við rússneska leiðtogann í viðleitni til þess að binda enda á stríðið. Í bréfinu sagði Úkraínuforseti það rangt að bíða eftir því að átökin yrðu aftur áherslumál bandarískra stjórnvalda. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tekið einhvern þátt í málamiðlunum þeirra á milli en dregið hefur úr afskiptum forsetans á síðustu vikum í kjölfar þess að stríð milli Bandaríkjanna og Íran braust út.
Í ræðustól á efnahagsráðstefnunni í Sankti Pétursborg í gær hafnaði Pútín beiðni Zelensky um fund. Hann sagði að vopnahlé myndi einungis gera það að verkum að Úkraínumenn fengju tíma til þess að endurskipuleggja sig. Stríðinu lyki einungis þegar markmiðum Rússlands væri náð.