Alþjóðlegir leiðtogar hafa fordæmt notkun Rússa á meðaldrægri Oreshnik-eldflaug á í Úkraínu í fyrrinótt. Fjórir létust þegar edlauginni var skotið í átt að Kænugarði.
Oreshnik er ofurhljóðfrá eldflaug og getur hún borðið kjarnaodd. VOpnið er háþróað og kemst það framhjá nútíma loftvarnarkerfum sem hefur vakið áhyggjur meðal vestrænna ríkja. Hún getur dregið allt að 5.500 kílómetra sem þýðir að stór hluti Evrópu er innan færis.
Rússneska varnarmálaráðuneytið staðfesti árásina í gær og sagði hana vera svar við meintum árásum Úkraínu á borgaraleg skotmörk í Rússlandi. Úkraínska ríkisstjórnin hefur hins vegar hafnað þeim ásökunum alfarið.
Viðbrögð frá Evrópu voru hörð. Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, kallaði árásina „glannalega stigmögnun“ og ítrekaði áframhaldandi stuðning Þjóðverja við Úkraínu.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði árásina sýna hversu grimm yfirvöld í Kreml eru og sagði árásina endurspegla virðingarleysi þeirra fyrir mannslífum og friðarviðræðum.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti sagði notkun eldflaugar sem er hæf til að bera kjarnaodd benda til þess að hernaður Rússa væri kominn í ógöngur. Þá sagði Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, að Rússar væru komnir í blindgötu í innrásarstríði sínu og beindu nú árásum sínum í auknum mæli að borgaralegum svæðum.
Íbúar í Kænugarði lýstu mikilli skelfingu eftir árásina. Svitlana Onofryichuk, 55 ára kona sem starfað hefur á markaði í borginni í rúm tuttugu ár, sagði árásina þá verstu frá upphafi stríðsins.
„Þetta var hræðileg nótt og ekkert þessu líkt hefur gerst áður í stríðinu,“ sagði hún. „Mér þykir mjög leitt að þurfa að kveðja Kænugarð. Ég get ekki verið þar lengur. Starfið mitt er farið, allt er farið, allt er brunnið.“
Gert er ráð fyrir að utanríkisráðherrar Evrópusambandsins ræði frekari aðgerðir og aukinn þrýsting á Rússland á fundi sínum í næstu viku.