Fyrrverandi embættismenn Þýskalands funduðu með rússneskum embættismönnum á laum í Baku, höfuðborg Aserbaísjan, í mánuðinum um leiðir til að binda enda á stríðið í Úkraínu, segir Ilham Aliyev, forseti Aserbaísjan. Forsetinn segir fundinn hafa farið fram alfarið án vitneskju þarlendra yfirvalda.
TVP World greinir frá.
Þýsku og rússnesku embættismennirnir funduðu á milli 12. og 14. júlí. Aliyev greindi frá fundarhaldinu á blaðamannafundi með Friedrich Merz Þýskalandskanslara í dag. Merz segist ekki hafa vitað af fundinum.
Rannsókn þýskra miðla varpar ljósi á málið
Í frétt TVP World segir að sameiginleg rannsókn þýsku miðlanna Die Zeit og ARD hafi komist að því að Ronald Pofalla, sem var áður skrifstofustjóri Angelu Merkel þáverandi Þýskalandskanslara, og Matthias Platzeck, fyrrverandi leiðtogi Jafnaðarmannaflokks Þýskalands, hefðu verið fulltrúar Þjóðverja á fundinum leynilega.
Þeir hafi fundað með Viktor Zubkov, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands og stjórnarmaður orkufyrirtækisins Gazprom sem er í ríkiseigu, og Valery Fadeyev sem fer fyrir mannréttindaráði Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Fadeyev hefur sætt viðurlögum frá Evrópusambandinu síðan 2023 fyrir þátttöku sína í innrásarstríði Rússa.
Forseti Aserbaísjan segir fluggögn sýna að þýska sendinefndin hafi komið til landsins frá Berlín 12. júlí og yfirgefið landið tveimur dögum síðar. Gögnin sýni einnig fram á að Zubkov og Fadeyev hafi verið í Baku á sama tíma.
„Fluggögnin styðja það að leynilegur fundur hafi verið haldinn í Baku,“ sagði Aliyev á blaðamannafundinum.
Rannsókn þýsku miðlanna hafi leitt í ljós að sambærilegir leynifundir kunni að hafa átt sér stað síðan 2024. Öryggisstofnanir Þýskalands telji þá lið í rússneskri aðgerð sem hafi það markmið að sannfæra Þjóðverja um að innrásarstríðinu geti aðeins lokið á forsendum Rússa og að ryðja veginn fyrir frekara samtali á milli þýskra og rússneskra yfirvalda.
Angela Merkel, sem var kanslari Þýskalands frá 2005 til 2021, hefur verið gagnrýnd fyrir efnahagsleg tengsl við yfirvöld í Rússlandi og stuðning sinn við Nord Stream 2-gasleiðsluna. Gagnrýnendur segja gasleiðsluna hafa gert Þjóðverja hættulega háða Rússlandi.
Ilham Aliyev tjáði sig ekki um hvað fór fram á leynilega fundinum í júlí. Enginn embættismaður frá Aserbaísjan hafi verið viðstaddur og því viti hann ekki hvað fór fram á honum.
„Ef þessum fundi var ætlað að stuðla að endalokum stríðsins á milli Rússlands og Úkraínu þá fögnum við því,“ sagði Aliyev á blaðamannafundinum.
Aserbaísjan hefur reynt að viðhalda sambandi við bæði ríki síðan Rússar réðust inn í Úkraínu árið 2022, bæði með því að veita mannúðaraðstoð í Úkraínu og með því að taka ekki þátt í aðgerðum vestrænna ríkja sem beinast gegn Rússlandi.