Útlit er fyrir tiltölulega hægan vind um mestallt land. Það er helst austast sem vindurinn nær einhverjum krafti og verður á bilinu 8-13 metrar á sekúndu. Þar verður líka mesta vætutíðin en annars staðar verða dálitlar skúrir eða slydduél.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Sunnan 8-13 metrar á sekúndu austast, en annars hægari vindur. Rigning eða slydda austantil og snjókoma til fjalla, en annars dálitlar skúrir eða slydduél. Styttir víða upp um tíma í kvöld.
Austlæg eða breytileg átt á morgun, yfirleitt hæg en strekkingur á Vestfjörðum. Rigning eða slydda á láglendi fyrir norðan og austan en snjókoma inn til landsins, annars smáskúrir. Vestan 5-10 austantil annað kvöld og styttir upp að mestu.
Hiti 2 til 10 stig, mildast á Austfjörðum.