Ríkislögreglustjóri fær alræðisvald á stríðstímum yfir 18-65 ára konum og körlum

Halur Hallsson skrifar:
Ríkisstjórn Íslands er að hervæða Ísland vegna útþenslu Esb til austurs. Evrópuher er í undirbúningi í Brussel, svo sem margoft hefur komið fram. Fyrir Alþingi liggur frumvarp 114/2025 um Almannavarnir þar sem sett eru inn ákvæði: „…á tímum náttúruvár, heilbrigðisvár, netöryggisógnar, hernaðaraðgerða eða öðrum ástæðum“ Ríkislögreglustjóri fær alræðisvald á stríðstímum til að senda 18-65 ára karla og konur á vígvelli Evrópustyrjaldar, kalla til landsins heri og senda sveitir erlendis. Blandað er saman almannavörnum og hernaði. Ákvarðanir verða ekki teknar af ráðherra heldur tilkynntar ráðherra. Fólk má ekki yfirgefa lögregluumdæmi nema með leyfi. Frumvarpið var lagt í samráðsgátt í júlí í fyrra. Undirbúningur styrjaldar stendur yfir í nágrannaríkjum. Evrópskar drónaárásir á Rússland magnast, árásardrónar eru sendir yfir Evrópulönd, til dæmis Eystrasaltsríkin til árása á St. Pétursborg og Moskvu. Stórstyrjöld geisar í Úkraínu og mun breiðast út. Hér að neðan eru greinar 44-46 í frumvarpi 114/2025, enginn fjölmiðill á ríkisfé fjallar um. Ísland verður óþekkjanlegt.
Frumvarpið gengur gegn Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins, 68. grein: „Nauðungarvinnu skal engum gert að leysa af hendi.“ Frumvarpið var tekið fyrir í alsherrjarnefnd Alþingis en ekkert nefndarálit hefur verið lagt fram.
Grein 44:
Almenn borgaraleg skylda við almannavarnir. Það er borgaraleg skylda þeirra sem eru á aldrinum 18–65 ára að gegna á hættustundu, án endurgjalds, starfi í þágu almannavarna í umdæmi þar sem þeir dveljast samkvæmt fyrir mælum lögreglustjóra, að fenginni tillögu ríkislögreglustjóra. Þeim sem kvaddir hafa verið til starfa skv. 1. mgr. ber að sæta læknisskoðun ef nauðsynlegt þykir.
Enginn má á neinn hátt tálma því að maður gegni starfi sem hann hefur verið kvaddur til í þágu almannavarna … Ríkislögreglustjóri boðar þá sem kvaddir hafa verið til starfa í þágu almannavarna til námskeiða og æfinga. Öllum viðkomandi ber að fara að þeim fyrirmælum og öðrum starfsreglum. Óheimilt er að hverfa úr starfi án leyfis. Á hættustundu má sá sem kvaddur hefur verið til starfa ekki fara úr umdæmi lögreglustjóra án samþykkis lögreglustjóra eða þess er hann tilnefnir… Stjórnarskrárbrot er skýrt.
Grein 45:
Beiðni um alþjóðlega borgaralega aðstoð. Ríkislögreglustjóri getur að undangengnu heildstæðu mati á þörf, samráði við hlutað eigandi ráðuneyti og með samþykki ráðherra óskað eftir alþjóðlegri borgaralegri aðstoð þegar lýst hefur verið yfir almannavarnastigi, í samræmi við alþjóðasamninga og aðrar skuldbindingar sem Ísland á aðild að. Sé ekki unnt að fá samþykki ráðherra skv. 1. mgr. skal ákvörðunin borin undir ráðherra eins fljótt og auðið er.
Ráðherra skal upplýsa aðra ráðherra eða ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál eftir því sem við á. Ráðherra metur hvort og hvernig á að upplýsa ríkisstjórn og Alþingi. Heimild á grundvelli ákvæðis þessa útilokar ekki að ríkislögreglustjóri kalli eftir erlendri aðstoð samkvæmt ákvæðum lögreglulaga.
Grein 46:
Boð um alþjóðlega borgaralega aðstoð. Boði um alþjóðlega borgaralega aðstoð skal beint til ríkislögreglustjóra sem tekur afstöðu til beiðninnar í samráði við viðeigandi aðila. Samþykki ríkislögreglustjóri beiðnina skal sú ákvörðun tilkynnt ráðherra. Ríkislögreglustjóra er heimilt að samþykkja boð um alþjóðlega aðstoð í heild eða að hluta. Ríkislögreglustjóri getur ákveðið að hafna boði um alþjóðlega aðstoð að undangengnu mati.
Frumvarpið má lesa hér.