Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, og Steve Witkoff, sendifulltrúi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, hittast á fundi með Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, og Alexander Stubb, forseta Finnlands. Jared Kushner, sendifulltrúi og tengdasonur Trumps, tekur þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað.
Fundurinn er haldinn í Ósló og fer fram að beiðni Zelenskys. Hann bað norska og finnska ráðamenn um að koma á fundi með fulltrúum Trumps, að því er Støre greindi frá í morgun.
Norska ríkisútvarpið NRK hefur eftir Hanne Eggen Røislien, rannsakanda við varnarmálaskóla Noregs, að fundurinn sé mikilvægt skref á tíma þegar komið sé að krossgötum í stríðinu í Úkraínu.
Hilmar Mjelde, prófessor við háskólann í Vestlandet, segir að fundurinn sé tilraun til að bæta samskipti Trumps og Zelenskys. Hann hefur þó litla trú á að það skili árangri til langframa því það slettist alltaf upp á vinskapinn hjá þeim innan skamms. Hann segir að Trump þrýsti nú á Úkraínu að gefast upp á stríðinu.
Zelensky greindi frá því í dag að hann hefði rætt við Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um upplýsingagjöf vegna kerfa sem Úkraína notar til að verjast loftárásum Rússa.
Úkraínumenn segja Bandaríkjamenn hafa hægt á Starshield-kerfinu sem er mikilvægur hluti af því að greina og bregðast við dróna- og eldflaugaárásum Rússa. Bandaríkjamenn hafa neitað því.
Zelensky sagðist hafa átt uppbyggilegt samtal við Rubio og kvaðst þakklátur fyrir skýra afstöðu hans og vilja til að hjálpa til.