Gervigreind spilar sífellt stærra hlutverk í lífi fólks og fleiri leita til spjallmenna til að spyrja ráða, hvort sem það er í vinnu eða einkalífinu. Þetta á einnig við í skólakerfinu.
Stjórnvöld í Danmörku hafa sett saman neyðaraðgerðarpakka sem samanstendur af þremur aðgerðum sem hægt er að hrinda í framkvæmd til skamms tíma til að stemma stigu við óviðeigandi notkun gervigreindar í námi og prófum.
Munnleg vörn á lokaverkefni, eftirlit með skjám nemenda í prófum og að láta nemendur klára verkefni í skólum þar sem hægt er að fylgjast betur með vinnuferli þeirra, veita endurgjöf og skapa nákvæmari grunn fyrir mat.
Í framhaldsskóla á Norður-Jótlandi eru nemendur nú þegar látnir klára verkefni í skólanum til að forðast svindl.