Aðalmeðferð í Edition-málinu verður við Héraðsdóm Reykjavíkur föstudaginn 12. júní kl. 9:30. Þar mun hin 56 ára gamla Ming Ting Mancel svara fyrir ákæru um morð gegn 29 ára dóttur sinni. Framhald aðalmeðferðar verður 16. júní.
Samkvæmt ákærunni í málinu er Ming sökuð um að hafa banað dóttur sinni í félagi við eiginmann sinn með því að halda dótturinni fastri, m.a. með því að grípa um hægri upphandlegg hennar, brugðið snöru um háls hennar og í drjúga stund þrengt að öndunarvegi hennar, þannig að hún hlaut urmul punktblæðinga í andliti og á hálsi, auk bráðs yfirþans á lungum, og jafnframt stungið dótturina tveimur stungum með hnífi í brjóstkassann, þar sem önnur stungan gekk inn í hjarta hennar. Lést dóttirin síðar vegna lungnaþembu og rofs á hægri slegli hjartans sem leiddi til blæðingar og blóðfyllu í gollurhúsi hjartans.
Ódæðið var framið á Edition-hótelinu í Reykjavík þann 14. júní árið 2025. Er lögregla kom á vettvang voru dóttirin og eiginmaðurinn látin en Ming er ekki ákærð vegna láts eiginmannsins heldur er gengið út frá því að hann hafi tekið eigið líf.
Í skýrslutöku hjá lögreglu sagði Ming að fjölskyldan hefði ætlað að fremja sjálfsvíg saman. Hún sagði eiginmanninn hafa ætlað að stinga sjálfan sig í hjartað en loks beðið hana um að gera það og hún hafi orðið við þeirri ósk. Í næstu skýrslutöku nokkrum dögum síðar breytti konan framburði sínum, neitaði þá að hafa stungið þau og sagði eiginmanninn fyrst hafa stungið dótturina, svo hana sjálfa. (Sjá RÚV).