Þrír fjölmiðlamenn á Stars and Stripes, fjölmiðil bandaríska hersins, ætla að fara í mál við bandaríska varnarmálaráðuneytið vegna uppsagna á fjölmiðlinum.
Ritstjóri fjölmiðilsins Erik Slavin, útgefandinn Max Lederer og blaðamaðurinn Lara Korte voru rekin í síðustu viku. Þau segja ástæðuna vera umfjöllun fjölmiðilsins um aðstæður bandarískra hermanna um borð í flugmóðurskipinu Abraham Lincoln, sem var birt 11. ágúst.
Umfjöllun þeirra vakti mikla athygli og fjölmargir stórir fjölmiðlar fjölluðu um málið. Hermennirnir höfðu verið um borð í flugmóðurskipinu á níunda mánuð vegna stríðsátakanna í Mið-Austurlöndum.
Aðstæður þeirra voru sagðar afar krefjandi, erfitt var að koma birgðum og ferskum mat til skipsins, og greint var frá því að hermenn glímdu við sjálfsvígshugsanir og tveir hefðu reynt að stökkva frá borði.
Þremenningarnir fara í mál vegna uppsagnanna sem þeir segja að séu gróf brot á stjórnarskrárvörðum réttindum blaðamannanna til tjáningarfrelsis og vegna ritskoðunar bandaríska varnarmálaráðuneytisins. Þess er jafnframt krafist að þau verði endurráðin á fjölmiðlinum.
Ritstjórnarlegt sjálfstæði í hættu
Stars and Stripes hefur fjallað um bandaríska herinn síðan í borgarastríðinu 1860 og er að hluta til fjármagnaður af bandaríska varnarmálaráðuneytinu. Fjölmiðillinn hefur þó ávallt haft ritstjórnarlegt sjálfstæði.
Pete Hegseth varnarmálaráðherra hefur verið gagnrýninn á Stars and Stripes og sjálfstæði fjölmiðilsins og annarra herfjölmiðla hefur verið ógnað.
Hermenn á heimleið
Stars and Stripes hafa eftir ónafngreindum heimildarmanni í bandaríska sjóhernum að flugmóðurskipið Abraham Lincoln sé nú á heimleið frá Mið-Austurlöndum eftir að hafa verið yfir 280 daga á sjó.
Skipið siglir yfir Kyrrahafið áleiðis með viðkomu í Tælandi í byrjun september, áður en það siglir áfram til heimahafnar í San Diego í Bandaríkjunum.