Fjallað var um málið í kvöldfréttum Sýnar en fyrir áramót vonaðist innviðaráðherrann til að unnt yrði að bjóða út Sundabrautina á næsta ári og að hún gæti jafnvel orðið tilbúin árið 2032. Þær tímaáætlanir virðast núna vera í óvissu.
Ráðherrann vill þó ekki gefa frá sér að markmiðin náist.
„Já, við stefnum ótrauð á það,“ segir Eyjólfur.
„Umhverfismatsskýrslan og umhverfismatið hefur tafist alveg gríðarlega. Ég hélt að þetta ætti að klárast síðasta vor,“ segir ráðherrann í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Hann hafnar því að stofnun innviðafélags þurfi að tefja verkefnið. Ráðherrann hyggst hins vegar fela lögmannsstofu að rannsaka hvað valdi töfum á umhverfismati en það er núna í meðförum Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, eða HMS, sem Skipulagsstofnun rann nýlega inn í.
„Þetta er algjörlega fáheyrt að svona tafir séu á umhverfismati. Það er gerð matsáætlun þarna. Og það virðist ekki vera metið eftir þeirri áætlun heldur farið út um allar koppagrundir, - fundnar nýjar plöntur og svo fleira.
Þetta er lögbundið mat með matsáætlun og það á að meta umhverfisáhrif framkvæmdarinnar samkvæmt þeirri matsáætlun. Það virðist ekki hafa verið gert, það virðist hafa verið farið út fyrir það mat,“ segir Eyjólfur.
En stærsta spurningin er: Á að smíða brú yfir Kleppsvík eða grafa göng?
-Hver tekur þá ákvörðun?
„Ég tel að hún sé á mínu borði og vissulega kannski líka sveitarfélagsins, en skipulagsvaldið er þar. En þetta er fyrst og fremst ríkið sem er að byggja þennan veg. Og ég er með ábyrgð á þessum málaflokki.“
-Vegagerðin mælir eindregið með brú. Ertu sammála því mati?
„Mér finnst það mjög áhugaverður kostur, ég verð að segja alveg eins og er. Brú, samkvæmt mínum upplýsingum, er ódýrari kostur. Og meiri notkun á brú,“ svarar innviðaráðherra en hér er ítarlegri lýsing á Sundabraut: