Hljómsveitin Purrkur Pillnikk hefur sent frá sér nýtt lag, Læknir og svín, en um er að ræða fyrsta frumsamda lag sveitarinnar sem kemur út í 44 ár.
Sveitin starfaði upphaflega á árunum 1981 til 1982 og hefur á undanförnum misserum verið að koma saman á ný. Samkvæmt tilkynningu frá hljómsveitinni hefur síðasta árið farið í æfingar og lagasmíðar og er von á nýrri plötu síðar á árinu.
Skipan sveitarinnar er að mestu óbreytt frá upphafsárunum. Einar Örn Benediktsson fer með söng og blásturshljóðfæri, Bragi Ólafsson leikur á bassa og Friðrik Erlingsson á gítar. Við trommusettið hefur Sigtryggur Baldursson tekið við af Ásgeir Bragason, sem lést fyrir nokkrum árum.
Endurvakning sveitarinnar á sér rætur að rekja til ársins 2023 þegar heildarsafn verka Purrks Pillnikks kom út. Við það tækifæri voru nokkur eldri lög endurhljóðrituð og gefin út undir nafninu Afturgöngur, sem varð kveikjan að því að meðlimir sveitarinnar hófu á ný að æfa saman og semja nýtt efni.
Nýja lagið Læknir og svín markar því fyrstu útgáfu sveitarinnar af nýju frumsömdu efni síðan árið 1982.
Hægt er að hlusta á nýja lagið með Purrki Pillnikk hér.