Kosið var um tvenn lagafrumvörp til breytinga á lögum um þungunarrof á pólska þinginu í gær. Ríkisstjórn Donalds Tusk lofaði afglæpavæðingu þungunarrofs í aðdraganda pólsku þingkosninganna árið 2023. Erfitt hefur reynst að breyta lögunum því skiptar skoðanir eru um þungunarrof innan ríkisstjórnarinnar.
Í Póllandi er að finna eina ströngustu þungunarrofslöggjöf Evrópu. Þungunarrof er með öllu óheimilt nema í tilfelli nauðgunar, sifjaspells eða ef meðganga stefnir lífi móðurinnar í hættu.
Mismikill stuðningur við frumvörpin á þinginu
Flokkur Donalds Tusk, Borgaravettvangur og Vinstri bandalagið lögðu fram fyrra frumvarpið sem var kosið um en það snerist um að afglæpavæða þungunarrof og aðstoð við þungunarrof. Frumvarpið var samþykkt með 217 atkvæðum gegn 213, en þrír þingmenn sátu hjá.
Hitt frumvarpið sem lagt var fram og kosið um kom frá íhaldssamari samstarfsflokkum, Bændaflokknum og Pólland 2050. Það snérist um að fella úr gildi úrskurð stjórnarskrárdómstóls frá árinu 2020 sem bannaði þungunarrof, jafnvel þegar fósturgallar eru fyrir hendi.
Sá úrskurður vakti á sínum tíma mikla reiði í Póllandi en þrátt fyrir að meirihluti Pólverja sé andvígur þungunarrofi gildir það ekki um þungunarrof þegar fósturgallar eru fyrir hendi. Frumvarpið um að fella úr gildi úrskurðinn var samþykkt í gær með 233 atkvæðum gegn 203 og einn sat hjá.
Þungunarrof enn mikið álitamál í Póllandi
Búist er við því að forseti Póllands, Karol Nawrocki, beiti neitunarvaldi gegn báðum frumvörpunum. Hann barðist fyrir og staðfesti úrskurð stjórnarskrárdómstóls árið 2020. Hann hefur ekki enn tjáð sig um frumvörpin eftir að kosið var um þau á pólska þinginu.
Tvenn mótmæli eru ráðgerð í Varsjá síðar í vikunni, önnur gegn þungunarrofi og hin til stuðnings réttinum til þungunarrofs.