Leó XIV páfi heldur til Spánar í dag. Í vikulangri heimsókn sinni hyggst páfi leggja áherslu á innflytjendamál og samfélagslegt réttlæti.
Fyrst á dagskrá páfa er heimsókn til Filippusar VI Spánarkonungs og Letiziu Spánardrottningar í konungshöllina í höfuðborginni Madríd.
Síðar í dag leiðir páfi bænahald nærri Santiago Bernabeu-leikvanginum. Búist er við um 400 þúsund gestum. Á morgun er gert ráð fyrir að um milljón manns sæki guðsþjónustu páfa í miðborg Madrídar.
Leó mun einnig halda ræðu á spænska þinginu og blessa nýja turna Sagrada Familia-kirkjunnar í Barcelona.
Ræðir við fórnarlömb kirkjunnar
Til stendur að páfi ræði við fórnarlömb kynferðisofbeldis presta kaþólsku kirkjunnar á Spáni. Talið er að frá árinu 1940 hafi um 200 þúsund börn verið beitt kynferðisofbeldi af hálfu presta á Spáni. Í mars undirrituðu ríkisstjórn Spánar og kaþólska kirkjan samkomulag um greiðslu bóta til fórnarlambanna en um langt árabil hafði brotunum verið sópað undir teppið af stjórnendum kirkjunnar.
Á fimmtudag og föstudag staldrar páfi við á Kanaríeyjum. Þar ætlar hann að hitta flóttafólk og félagasamtök sem aðstoða það.
Eyjaklasinn er helsti komustaður ólöglegra innflytjenda til Spánar. Ferðin þangað frá vesturströnd Afríku er löng og hættuleg. Alþjóðlega fólksflutningastofnunin, IOM, telur að á síðasta ári hafi nærri 1.200 hafi farist á þessari leið.